7. flokkur – ævintýraflokkur í Vindáshlíð

Það voru hressar stelpur sem mættu hér í Hlíðina fríðu í dag. Þegar allir höfðu komið sér fyrir í herbergjunum sínum, skoðað sig um var boðið upp á hressingu, nýbakað kryddbrauð og jógúrtkaka sem rann vel niður í mannskapinn. Brennókeppnin fór af stað eftir kaffi og stelpurnar föndruðu miða á herbergishurðarnar sínar með nöfnum þeirra sem þar dvelja. Margar voru svo úti að leika sér og rannsaka umhverfið en aðrar sátu og spjölluðu.
Í kvöldmat fengum við lasagne og hvítlauksbrauð og ekki var annað að sjá en að dömunum líkaði það vel.
Top model fór fram í íþróttahúsinu í kvöld þar sem stelpurnar hönnuðu einhvers konar klæði úr ruslapokum og fleiru. Gríðarleg stemmning var í kringum það.
Að lokinni kvöldhressingu var hugleiðing þar sem við ræddum um að oft sæjum við ekki hjálpina sem Guð sendir okkur með öðru fólki og var hvatningin sú að vera duglegar að þiggja þá aðstoð sem býðst.
Núna stendur svo yfir bænakonuleit þar sem stelpurnar leita að sinni bænakonu eftir vísbendingum. Þær fara svo með henni inn á herbergi og spjalla saman í rólegheitunum og lesa sögu.
Góða nótt frá okkur öllum
kær kveðja,
Álfheiður forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum