
Hér má finna myndir úr flokknum.
Dásamlegri viku á Hólavatni er að ljúka!
Sumar þeirra áttu svolítið erfitt fyrstu nóttina og fundu fyrir heimþrá – í kvöld áttu margar erfitt og vildu helst óska að geta verið hér aðra viku. En mikið verður samt gott að komast heim og geta átt minningarnar frá vikunni, skoðið endilega myndirnar með þeim og bjóðið þeim að segja frá!
Í dag var ræs seint, enda varði seinni kvöldvakan og partýið fram undir miðnætti í gær.
Það voru hópleikir og keppnir í dag, börn og starfsfólk gerðu jafntefli í fótbolta, 5-5.
Þau sem taka hafa gjarnan þurft að stökkva í vatnið, svo enginn gerði það í dag.
Veislukvöldvaka, varðveldur og kósý var hápunktur dags.
Við erum þakklát fyrir þessa daga og hlökkum til að hitta þær aftur næsta sumar.