
Stelpurnar vöknuðu við fjöruga tónlist og dans hjá foringjum frammi á gangi, og þetta voru allskyns lög um það að vakna. Í hádegismat fengu þær grjónagraut og meðlæti, og héldum við síðan Ölversleika. Þar var keppt í cheerios talningu/giski, stígvélasparki, ljóðagerð, sippi og broskeppni. Síðan fengu þær bananabrauð og súkkulaðibitakökur í kaffitímanum. Eftir kaffi gerðum við náttúrualtari þar sem hver og ein fékk það verkefni að búa til listaverk úr því sem þær fundu í náttúrunni. Starfsfólkið hafði gert stóran kross úr greinum og það var grunnurinn að altarinu. Við héldum stund úti í litlulaut, stóðum allar í hringi við krossinn með listaverkin okkar og sungum við gítarleik. Ein í einu nefndu þær svo eitthvað eitt sem þær eru þakklátar fyrir og settu verkin sín á eða í kringum krossinn til að mynda fallegt náttúrualtari. Þær fengu tortillur í kvöldmat og héldu svo á kvöldvöku þar sem síðasta herbergið lék leikrit og leik fyrir hinar stelpurnar. Eftir það var bíókvöld uppi í sal og fengu þær popp og kósýlegheit.