
Ævintýraflokkur stúlkna – hálfnaður
Á mánudaginn lögðu 19 stelpur af stað frá Glerárkirkju, tilbúnar í ævintýra viku á Hólavatni. Sumar voru að koma annað eða jafnvel þriðja sumarið sitt, aðrar í fyrsta skipti. Þar sem þetta er fámennur flokkur komum við þeim fyrir á neðrihæðinni í þrem herbergjum og það gekk vel að koma sér fyrir.
Sumar voru búnar að undirbúa það vel að græja sér kósý rými í herberginu, jafnvel mættar með skraut, teppi og púða til að gera rýmið að sínu.
Eins og venjulega förum við upp í Laut á degi eitt til að fara í nafnaleiki, hópefli og skemmtilega leiki fram að hádegismat.
Það var steiktur fiskur í hádeginu og þar sem sólin skein og hlýtt var í veðri fórum við beint í báta og busl eftir hádegismat. Þær fóru flestar í vatnið, svömluðu og syntu eða léku sér í fjörunni. Það var skúffukaka í kaffinu áður en við drifum þær allar út í tuskuleikinn. Það er stór eltingaleikur sem nær yfir allt svæðið, með þrautum og smá spennu – leikurinn keyrði þær alveg út og eftir dag með fullt af hasar vildu margar slaka fram að kvöldmat, voru að leika sér í kringum húsið eða máluðu með vatnslitum og útbjuggu vinabönd.
Eftir kvöldmat var komið að fyrstu kvöldvökunni! ÞAð var upplifun fyrir þær sem ekki hafa verið á Hólavatni. Söngvar, leikrit, leikir, hugvekja og kvöldbæn áður en við fengum okkur ávexti í kvöldhressingu og fórum í háttinn.
–
Dagur 2!
Það var ræs kl.8 og morgunmatur kl.8:30.
Þær voru mjög peppaðar í daginn en þrátt fyrir hita úti var sunnan átt og rok, svo við breyttum aðeins plönum og eftir morgunstund þar sem Miskunnsami Samverjinn var til umræðu vorum við í rólegri dagskrá inni fyrir hádegi og kósý uppi í hengirúmmum. Eftir hádegið fóru Sindri og Kári með þær í náttúrugöngu. Við týndum blóðberg og vallhumal til að laga jurtate, settumst í skógarrjóður og sögðum stelpunum þjóðsögur áður en við héldum heim í hús.
Meðan stelpurnar voru í burtu límdu foringjarnir fyrir alla glugga í húsinu svo það var niðamyrkur inni og undirbjuggu „Morð í myrkri“, leik í anda Imposter, þar sem húsið allt er leikvöllurinn. Þetta var pínu skuggalegt en þær voru allar öruggar og skemmtu sér svo vel!
Þær eru búnar að kanna allt umhverfið hér í kring, finna hreiður, jarðaberjabreiður, leyni hengirúmmin, hoppa á trampólíninu, keppa í hjólabílarallý og spila súlutennis – og ekki má gleyma að þær eru búnar að læra helling af Hólavatnssöngvum. Þegar þetta er skrifað eru þær einmitt allar í kósý horninu undir stiga að syngja „Hólavatn Hjartakæra“ – þær eru svo fáar, að þær komast allar fyrir undir stiganum og eru að hlýja sér eftir sundsprett í vatninu – en meira um það á degi 3:
Dagur 3:
Þrátt fyrir að deginum sé ekki lokið er um að gera að segja frá ævintýrunum.
Það var extra löng morgunstund, söngur, saga og spjall. Við vorum að ræða Jesú, hvað þær vita um hann og hvaða spurningar eða pælingar þær hafa og samtalið varð alveg dásamlegt. Þær fengu frjálsan tíma úti fram að hádegi, voru í bátum og leikjum, körfubolta og tennis.
Eftir hádegi gengu þær í „Drulluvík“, hinumegin við Hólavatn. Við fórum upp á hæðina ofan við Hólavatn og gengum þar yfir í víkina þar sem er sand/moldarfjara og hægt að dunda í fjörunni, slaka í sólinni, eða bara spjalla og hafa kósý. Sumar voru brattar og syntu út í fylgd leiðtoga.
Í kaffinu kom bátur með vatn, mjólk og nýbakaða kanilsnúða. Eftir kaffið var í boði að ganga fjöruna heim eða synda og 15 af 19 stelpum vildu synda. Tveir bátar fylgdu, auk tveggja syndandi foringja og tveggja foringja sem gengu meðfram vatninu. Þær voru grjótharðar en þetta er alveg dágóður spölur. Við héldum þeim nálægt bakkanum svo þær gætu alltaf stigið niður og gengið.
Þegar við komum heim var búið að draga fram vatnsennibrautina og þær sem vildu ekki fara strax inn í sturtu og slökun renndu sér alveg dágóða stund.
Núna eru þær flestar komnar í náttföt, og eru undir stiganum í nýbyggingunni, búnar að fylla skotið af dýnum og teppum, þeim var nokkrum kalt eftir sundið svo við hentum hitablásaranum í skotið svo þar yrði funheitt og þær eiga örugglega eftir að sofna alveg útkeyrðar í kvöld.
Reyndar – þá er serkjó á eftir – þ.e. náttfatapartý! Eftir kvöldmat og stutta kvöldvöku smölum við þeim í háttinn og þegar það er að komast á ró kveikjum við á partýtónlist og bjóðum í auka kvöldvöku, dans, söng og leikrit sem endar á að það rignir sunlolly yfir gólfið í matsalnum. Þetta er alltaf upplifun og algjört uppáhald hjá krökkunum.
Þau vita aldrei hvaða kvöld þetta verður svo þið eruð að fá upplýsingar sem þau mega alls ekki fá – en það gerir ekkert til.
Á morgun er stefnan sett á Hóló-olympics eða keppnir þar sem börnin reyna að sigra okkur starfsfólkið í ýmsum þrautum, það er alltaf stemning!
Heilt yfir, þá er allt gott, börnin til fyrirmyndar, heimþrá í lágmarki, ekkert ves, engir árekstrar eða drama, eiginlega bara draumur – og þannig ætlum við að hafa komandi daga líka!
Myndir fara inn á Flickr á morgun!

Efri mynd: Allar stelpurnar og nokkrir foringjar að hlýja sér undir stiga eftir sundsprett í Hólavatni
Neðri mynd: Stelpurnar að synda í Drulluvík
