6. flokkur – dagur þrjú

Það var nóg við að vera á þriðja deginum okkar hér í Vindáshlíð. Dagurinn byrjaði eins og gærdagurinn með morgunmat, fánahyllingu og biblíulestri þar sem við héldum áfram að skoða hvað gerir okkur að flottum stelpum. Við ræddum líka um fyrirmyndir og stelpurnar sögðu frá því að foreldrar og eldri systkini væru oft fyrirmyndir fyrir þær.
Brennómótið hélt áfram og nú eru línur farnar að skýrast fyrir úrslitaleikinn sem fer fram í dag, miðvikudag. Stelpurnar hlupu Hlíðarhlaupið en þá er hlaupið niður að hliði og er það liður í íþróttakeppni flokksins. Aðrar íþróttir (en þær eru býsna fjölbreyttar) sem keppt var í í dag var hversu fljót þú ert að klæða þig í og úr fötum, auðvitað yfir þín eigin föt 🙂 og hversu lengi þú getur haldið á tveggja lítra flöskum í hvorri hendi. Gríðarlega skemmtileg stemmning sem skapast í kringum þessa keppni. Við fórum í göngutúr niður í réttir og þar var farið í ýmsa leiki. Alltaf vinsælt að gera það.
Kvöldvakan var á sínum stað sem og kvöldkaffi og hugleiðing og það voru þreyttar stelpur sem lögðust á koddann í kvöld.
Í dag er svo síðasti heili dagurinn okkar, svokallaður veisludagur, en þið fáið að heyra frá honum seint í kvöld eða í fyrramálið.
Kær kveðja,
Álfheiður forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum