6. flokkur – dagur tvö

Dagurinn í dag gekk mjög vel enda stútfullur af skemmtilegri dagskrá. Dagurinn hófst að vanda með morgunmat og fánahyllingu og eftir það hittumst við allar í kvöldvökusalnum og ræddum m.a. um Biblíuna og reyndum að komast að því hvað hún er gömul. Stelpurnar eru afar fróðleiksfúsar og spurular og virkilega gaman að skoða þessa hluti með þeim. Við ræddum líka hversu mikilvægt það er að sjá það góða í fari okkar sjálfra og þær fengu það verkefni í dag að velta fyrir sér hvað gerði þær að flottum stelpum. Við ætlum svo að halda áfram að horfa jákvæðum augum á okkur sjálfar og hvernig manneskjur við viljum vera.
Brennóleikir tóku völdin eftir biblíufræðsluna og eftir hádegismat héldum við brunaæfingu. Það er jú mikilvægt að vita hvernig skal bregðast við ef rýma þarf húsið. Æfingin gekk mjög vel og að henni lokinni tók við ratleikur um svæðið. Eftir kaffi hélt brennó keppnin áfram sem og föndur, vinabönd og frjálsir leikir. Eftir kvöldmat sáu stelpurnar í Furuhlíð, Barmahlíð, Grenihlíð og Eskihlíð um að halda uppi fjörinu á kvöldvöku og gerðu það vel.
Kvöldhressingin var á sínum stað ásamt kvöldhugleiðingunni og að henni lokinni, þegar stelpurnar voru komnar inn í herbergin sín og tilbúnar í háttinn mættu foringjarnir á herbergisganginn með hávaða og látum og buðu í náttfatapartý. Það hitti heldur betur í mark og dönsuðu stelpurnar uppi á borðum í banastuði. Ótrúlega skemmtilegt kvöld sem endaði svo á rólegu nótunum með sögu og svo stund fyrir svefninn með bænakonum inni á herbergjum.
Við sendum bestu kveðjur úr Hlíðinni fögru
kær kveðja,
Álfheiður forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum