Það voru 83 glaðar stelpur sem mættu í Hlíðina fríðu í dag í blíðskaparveðri. Öllum var þeim raðað í herbergi og svo tók við að koma sér fyrir með aðstoð bænakvennanna sem munu halda utan um sitt herbergi allan flokkinn. Að því loknu, auk smá skoðunarferðar um húsið og næsta umhverfi fengum við jógúrtköku sem sló heldur betur í gegn. Eftir kaffi var hægt að fara í brennó, föndra, leika sér úti, spila og nutu allar stelpurnar sín við sitt fram að kvöldmat. Boðið var upp á pítur sem voru borðaðar upp til agna, enda bestu pítur sem við höfum smakkað! Kvöldvakan fór fram að loknum mat en þar buðu tvö herbergjanna upp á skemmtiatriði og svo var endað í útileik. Eftir kvöldkaffið settum við í rólegri gírinn, heyrðum sögu, sungum lög og fórum saman með kvöldbæn. Þá var komið að því að undirbúa okkur fyrir svefninn en hápunktur margra stelpnanna er að fá að bursta tennurnar í læknum og var engin undantekning þar á í kvöld. Þegar þetta er skrifað er komin ró í húsið og langflestar stelpnanna sofnaðar. Við hlökkum til morgundagsins sem færir okkur ný ævintýri.
Kveðjur,
Álfheiður forstöðukona