
Hér í Ölveri köllum við seinasta heila daginn í flokknum veisludag! Dagurinn byrjaði að vana á vakningu-> morgunmat-> fánahyllingu-> tiltekt-> biblíulestri og að lokum brennó!
Í hádegismatinn var pastasalat sem stelpurnar borðuðu ágætlega af.
Veðrið í vikunni hefur verið smá leiðinlegt en fengum alveg frábært veður á veisludegi og eftir hádegi fóru því stelpurnar að ánni skammt frá Ölveri. Sumar fóru að vaða og aðrar fóru í sólbað.
Það var svo geggjað veður að við ákváðum að borða kaffitímann úti. Í kaffinu voru Ölvers-bollur og karamellulengjur.
Eftir kaffitímann fóru allar stelpurnar í sturtu og sumar líka í pottinn. Svo var í boði að fá fastar fléttur og allar fóru að gera sig fínar fyrir veislukvöld.
Veislukvöld hófst með veislumat. Í matinn voru Ölvers-pizzur, stelpurnar voru hæstánægðar með matinn.
Næst var svo veislukvöldvaka, þar sem foringjarnir sýna leikrit og mikið sungið. Stelpurnar skemmtu sér konunglega og hlógu mikið.
Í veislukvöldkaffi fengu stelpurnar rice krispies.
Það var smá galsi í stelpunum í lok kvölds, skiljanlega eftir viðburðarríka viku en komin var ró á húsið um kl. 1.
Heimferðardagur
Í morgun voru nánast allar stelpurnar steinsofandi þegar þær voru vaktar um 9:30. Þær fengu morgunmat kl. 10, fóru í fánahyllingu og fóru svo að pakka.
Þegar stelpurnar voru búnar að pakka fóru þær á biblíulestur og svo var brennó. En að þessu sinni þá kepptu stelpurnar við foringjana í brennó. Liðið sem vann flesta leiki í vikunni keppti fyrst við foringjaliðið og svo kepptu allar stelpurnar við foringjanna.
Eftir brennó fengu þær pylsur í hádegismat og svo var komið að lokastund.
Á lokastundinni voru veitt verðlaun fyrir ýmsar keppnir í flokknum og allar stelpurnar fengu bækling með kveðju frá sinni bænakonu.
Við hér í Ölveri þökkum kærlega fyrir okkur! Það var ótrúlega gaman að fá að kynnast þessum frábæru stelpum!
Myndir úr flokknum verður svo áfram hægt að sjá hér https://flic.kr/s/aHBqjCXVWz
Bestu kveðjur,
Kristrún Lilja- forstöðukona