
Í dag hefur verið mikill gleðidagur hjá okkur upp í Vindáshlíð en þar sem þetta er styttri flokkur þá var veisludagur haldin hátíðlegur í dag.
Morguninn byrjaði með morgunmat, hafragraut, súrmjólk, cheerios og kornfleks. Beint eftir morgunmat fóru stelpurnar á fánahyllingu. Þaðan fóru þær niður í biblíulestur þar sem Dagný forstöðukona kenndi þeim um hversu dýrmætar þær eru, að hver og ein þeirra er sköpuð einstök og hversu mikið Guð elskar þær. Þær voru svo duglegar að hlusta á biblíulesturinn og enduðum við í leik sem heitir „Ég er einstök af því að…“ og skemmtu þær sér virkilega vel að hugsa út í hvað gerir þær einstakar.
Eftir biblíulestur var frjáls tími þar sem í boði var íþróttakeppni, brennó og föndur og nutu þær sín fram að hádegismat. Í hádegismat voru kjötbollur, kartöflumús, sósa og grænmeti og borðuðu stelpurnar það með bestu lyst.
Klukkan tvö var komið að útiveru og þar sem veðrið lék við okkur í Kjósinni var farið í göngutúr út að Brúðarslæðu sem er foss nálægt okkur. Þar fengu þær að busla í læknum og leika sér í náttúrunni. Tóku þær kaffitímann með sér, nýbakaðar ostaslaufur og súkkulaðibitakökur. Þær komu þreyttar og glaðar úr göngunni.
Þegar þær voru komnar til baka fóru þær að undirbúa sig fyrir veislukvöldið. Þær sem vildu skiptu um föt og fóru í sparifötin og undirbjuggu svo stelpurnar vinagang með sínu herbergi. Vinagangur fer þannig fram að stelpurnar ákveða eitthvað sem þær vilja bjóða hinum stelpunum og foringjum upp á í herberginu sínu. Það var ýmislegt í boði þar á meðal bangsapössun, hárgreiðsla, nudd, andlitsmynd og fleira.
Klukkan hálf sex hringdi bjallan þar sem veislustund var að byrja upp í kirkju. Þar sungum við nokkur lög saman og fengu stelpurnar að heyra söguna um hvernig Guð svaraði bænum Hlíðarmeyja árið 1957 þegar Vindáshlíð fékk kirkjuna, Hallgrímskirkju, okkar að gjöf og hvernig hún komst alla leið frá Saurbæ í Hvalfirði til okkar í Kjósina. Eftir það var farið út að fána þar sem fáninn var sunginn niður. Síðan var sungið og dansað „vefa mjúka dýra dúka“ sem hefur fylgt Vindáshlíð til margra ára. Voru síðan teknar hópmyndir af stelpunum með sínum herbergisfélögum og bænakonum.
Í kvöldmat var veislumatur – Vindáshlíðarpizzur sem eldhússtarfsfólkið töfruðu fram ásamt djús. Þar sátu stelpurnar með herberginu sínu og bænakonum og borðuðu saman og veittar voru viðurkenningar.
Veislukvöldvakan var stórskemmtileg en þar sýna foringjar listir sínar og mikið er sungið. Óhætt er að segja að mikið hafi verið hlegið og voru glaðar og kátar stelpur sem fóru upp í hugleiðingu en það er stund þar sem var sungið og foringi sagði sögu og sína og reynslu með Guði. Fengu stelpurnar frostpinna á meðan. Endaði sú stund á kvöldsöng Vindáshlíðar sem hefur verið sungin í lok dag til fjölda ára hér Hlíðinni.
Þær stelpur sem vildu fóru að bursta tennur út í læk en hinar inni og gerðu sig tilbúnar í háttinn og biðu eftir bænakonunum sínum. Áttu þær góða stund með sinni bænakonu áður en þær sofnuðu eftir viðburðaríkan og skemmtilegan dag.
Á morgun verður síðasti dagurinn okkar og mun rútan koma á Holtaveginn klukkan 14:30.
Hvet ykkur til að skoða myndir hér frá þessum skemmtilegu dögum https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/collections/72157629303373157/
Þar sem þetta verður síðasta fréttin héðan úr Stubbaflokk viljum við þakka ykkur fyrir traustið sem þið hafið sýnt okkur með því að leyfa stelpunum ykkar að vera hér með okkur. Þetta hafa verið virkilega skemmtilegir dagar með frábærum stelpum.
Fyrir hönd starfsfólks Stubbaflokks
Dagný Dögg forstöðukona