Stubbaflokkur – Vindáshlíð – dagur 1

Það mættu 34 hressar stelpur upp í Vindáshlíð í dag í Stubbaflokk en það er styttri flokkur fyrir stelpur sem eru 8-9 ára gamlar og eru að taka sín fyrstu skref í sumarbúðalífinu.

Gaman að segja frá því að þær hafa nánast engar þeirra gist í Vindáshlíð áður en voru virkilega spenntar og áhugasamar um Vindáshlíð og dvölina hér.

Þegar við mættum í Hlíðina fríðu byrjuðum við að fara með þær út í íþróttahús þar sem þeim var raðað í herbergi (að sjálfsögðu fengu vinkonur að vera saman í herbergi), farið yfir helstu reglur og farið í leiki. Eftir það var rölt með þær um svæðið og þær síðan kynntar fyrir sinni bænakonu sem aðstoðaði þær við að koma sér fyrir í sínum herbergjum áður en haldið var í kaffi.

Í kaffitímanum var boðið upp á nýbakaða jógúrtköku, mjólk og appelsínur. Eftir kaffi var frjáls tími þar sem þær fengu tækifæri á að læra brennó, fara í íþróttakeppni, föndra eða leika sér með vinkonum sínum.

Í kvöldmatinn var gómsætt lasagne, hvítlauksbrauð og grænmeti sem stelpurnar borðuðu með bestu lyst.

Beint eftir kvöldmat var kvöldvaka þar sem þær sem vildu tóku þátt í hæfileikakeppni meðan hinar fylgdust spenntar með.
Í kvöldkaffinu hafði eldhússtarfsfólkið bakað dásamlegar brauðbollur og skorið niður banana.

Eftir það var komið að hugleiðingu, en þegar hún var rétt byrjuð þá birtust foringjarnir syngjandi og fagnandi að nú væri komið að náttfatapartý. Mikið var sungið og dansað og foringjarnir léku listir sínar fyrir stelpurnar. Endað var á frostpinna, sögu og söng.

Eftir þennan eftirminnilega fyrsta dag voru flestar tilbúnar að skríða í rúmið og fóru bænakonurnar með sínum herbergjum út í læk að bursta tennur áður en þær fóru með þær í herbergin sín til að spjalla, lesa og biðja saman áður en stelpurnar steinsofnuðu.

Eins og við var að búast kom smávægileg heimþrá upp hjá einhverjum af stelpunum en okkar frábæru foringjar náðu að hlúa vel að þeim og hjálpa þeim að sofna.

Á morgun er eini heili dagurinn okkar með þeim og þá verður skemmtilegur veisludagur, en meira um það á morgun.

Þið getið skoðað myndir úr flokknum á flickr síðu Vindáshlíðar en munu myndir vera settar þar inn.

Kveðja úr Hlíðinni fríðu
Dagný Dögg forstaða

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum