
Gærkvöldið gekk mjög vel og var mjög lítið um heimþrá og sofnuðu flestar mjög fljótt eftir að bænakonurnar fóru.
Sæl, í morgun vöknuðu stelpurnar við tónlist tengda við Heimsmeistaramótið í fótbolta og voru allir foringjarnir klæddir í íþrótta treyjur. Þær græjuðu sig fyrir daginn og heppilega voru margar þeirra með treyjur í töskunni og gátu því tekið þátt í þema dagsins. Morgunmaturinn var eins og venjulega morgunkorn, súrmjólk og hafragrautur. Næst tók við fánahylling og biblíulestur þar sem við skoðuðum skemmtilegar staðreyndir um biblíuna og spjölluðum um uppáhalds vers úr henni. Brennókeppnin, íþróttakeppnir, föndur og vinabönd tóku svo við og fundu allar stelpurnar eitthvað til að gera. Í hádegismatinn var besti fiskur í raspi sem að ég veit um og eru margar sem eru hissa hversu góður hann er eftir að þær smakka hann. Næst tók við útivera og það var vinsælasti leikurinn okkar og er það foringjabólan. Þær komu svo inn í kryddbrauð og kanillengjur og var ekki skilið eftir mylsnu á borðum. Aftur fór brennó, íþróttir, föndur, sturtur og Gulla foringi bauð uppá fastar fléttur fyrir stelpurnar. Í kvöldmat var svo skyr og allskonar með því eins og heimagert múslí og niðurskornir ávextir ásamt pizzabrauði. Þá var komið að kvöldvökunni og var Andrea Ósk sem sá um Vindó Got Talent þar sem stelpurnar gátu sýnt hæfileika sína fyrir framan hópinn. Kvöldkaffið var á sýnum stað og fengu þær ávexti og kex fyrir háttinn. Þá tók við hugleiðing þar sem Kamilla las fyrir stelpurnar og áttum við gott spjall saman. Þær héldu svo að dagurinn væri búin enn nei ekki var það þannig, foringjarnir höfðu læðst upp til að fara í náttföt og mála sig í framan því það var komið að Náttfatapartýii. Brjálað stuð og dansað á borðum og svo tóku við skemmtiatriði frá foringjum. Bænakonur fylgdu svo sínum herbergjum og eyddu gæðastund með þeim.
Myndir halda áfram að koma inná Flickr síðu Kfum&Kfuk á íslandi
Kær Hlíðarkveðja
Andrea Anna Forstöðukona