
Þá er síðasti heili dagurinn hafinn hér hjá okkur í Vatnaskógi og dagskráin er þétt. Brekkuhlaup í frjálsum íþróttum, brennómót, heiti pottar, bátar, veiðar og varúlfur svo eitthvað sé nefnt. Eftir hádegi varlögð áhersla á ævintýradagskrá með vatnafjöri, útileiki og fleira. Krakkarnir fengu tækifæri til þess að keppa fótboltaleik á móti foringjunum sem vakti mikla lukku.
Dagskrá kvöldsins er svo eitthvað í þessa átt. Veislumatur um kvöldið, myndataka og kvöldvaka sem er af lengri og dýrari gerðinni, með bikarafhendingu, Biblíuspurningakeppni, leikritum, Sjónvarp Lindarrjóðri og léttu skonrokki að hætti foringjanna.
Veðrið hefur leikið við okkur í dag þar sem við vöknuðum við fagra sjón af spegilsléttu Eyravatni. Þó er skýjað og örlítil rigningadropar inn á milli, en við kvörtum ekki.
Þriðjudagurinn 30. júní – veisludagur
Morgunverður: Morgunkorn og súrmjólk
Hádegisverður: Pylsu-pasta, grænmeti og sósa
Síðdegishressing: Sjónvarpskaka, kryddbrauð og djús
Kvöldverður: Schnitzel og veglegt meðlæti + baukur
Kvöldhressing: Kex og mjólk
Krakkarnir hafa verið vaktir kl. 8:30 á morgnana en á brottfarardag er venja að gefa þeim ögn lengri svefn. Haninn mun því gala
kl. 09:00, þá munu krakkarnir fara í morgunmat. Eftir það pakka þau í töskur, finna dótið sitt og tæma herbergin. Því næst halda þau svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki. Því næst verður haldið í hádegismat, í flatbökuveislu að hætti Vatnaskógar og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.
Föstudagurinn 26. júní
Morgunverður: Morgunkorn og mjólkurvörur, kakó og brauð
Hádegisverður: Pizza og ís í eftirrétt
Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.
Þau ykkar sem hyggjast sækja krakkana sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar krakka sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.
Allir óskilamunir sem ekki skila sér til krakkanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.
Þetta er síðasta færslan frá 5. flokki 2026. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 5. flokk getur þú sent tölvupóst á [email protected] eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK á Íslandi, sími 588 8899.
Myndasíðan okkar er hér fyrir neðan.
Með virðingu og þökk,
Ástráður Sigurðsson, forstöðumaður