Í gær komu 83 mjög spenntar og fjörugar stelpur uppí Hlíð til okkar. Við byrjum alltaf á því að fara yfir reglur og skipta upp í herbergi áður enn að þær byrja að koma sér fyrir. Þar sem þetta er ævintýraflokkur þá fengu þær ekki að vita hver bænakona/konur heldur þurfa þær að bíða eftir kvöldinu þegar að bænakonuleitin fer af stað. Fyrsta „máltíð“ flokksins var ekki af verri endanum, þær fengu nýbakaða jógúrtköku og nýbakað brauð ala Lilja og var ekki kvartað yfir því. Þar á eftir tók við frjáls tími þar sem brennó, íþróttakeppnir, föndur, leikir og vinabönd voru í boði og fundu þær sér allar eitthvað að gera. Íþróttakeppnir dagsins voru 90° keppni og broskeppni og kepptu öll herbergi einn leik í brennó. Næst var komið að kvöldmat, í matinn var gómsætur grjónagrautur sem Þurý ráðskona, Gúgú eldhússtelpa og Lilja bakari bjuggu til og fóru allar saddar úr matsalnum. Þá var komið að fyrstu kvöldvöku, á dagskrá var Top Model þar fær hvert herbergi einn ruslapoka og þurfa að hanna flík úr honum. Þær fá einning aðgang að skærum, böndum, límböndum og heftara til að framkvæma verkefnið. Nú fór að róast aðeins í hópnum og tók við kvöldkaffi og hugla (hugleiðing), hugla kvöldsins var Andrea Ósk og sagði hún stelpunum frá týnda syninum og mikilvægi þess að fyrirgefa og gefa fólki annað tækifæri. Þá var komið að því sem stelpurnar höfðu beðið eftir BÆNAKONULEITIN, hvert herbergi fékk miða með þremur staðreyndum um sína bænakonu og þurfti að finna út úr hver það var með þeim. Foringjarnir sátu allar inní setustofu og kom sendi hvert herbergi 2 í einu sem gegnu upp að foringja og spurði ef staðreyndin átti við þann foringja höfðu þær fundið sína bænakonu. Þá enduðum við daginn með bænó þar sem stelpurnar fá að eyða tíma með sinni bænakonu og svo var farið að sofa.
Við erum ofboðslega spenntar að halda áfram að eyða tíma með stelpunum ykkar og verðum við duglegar að setja inn myndir og fréttir.
Myndir eru inná Flickr aðgangi KFUM&KFUK á íslandi.
Kær Hlíðarkveðja
Andrea Anna Forstöðukona