
Í dag er annar dagur krakkanna í Vatnaskógi að kvöldi kominn.
Þessi hópur er gríðarlega flottur og þau eiga hrós skilið. Mikil gleði ríkir hér og taka krakkarnir virkan þátt í allri dagskrá.
Í dag hefur verið þétt og skemmtileg dagskrá. Fyrir hádegi var öllum krökkunum skipt í lið og keppt var í brennómóti. Fótboltamót hóf göngu sína, frjálsu íþróttirnar voru á sínum stað, smíðaverkstæði og listasmiðja voru í boði auk þess sem vinabandagerð stóð yfir í Birkiskála. Síðan var boðið upp á vatnafjör þar sem krakkarnir fengu að setjast á tuðru sem dregin var um vatnið af mótorbát, að sjálfsögðu voru heitu pottarnir svo opnir til þess að hlýja sér eftir vatnafjörið.
Veðrið hefur haldið sér þurru í dag með dálittlum vindkviðum en krakkarnir hafa verið duglegir að leika sér úti og eru bátarnir sérstaklega vinsælir. Aðeins fjölmennara hefur verið í matsalnum en vinnudagur hefur gengið yfir þar sem sjálfboðaliðar sinna viðhaldsvinnu á svæðinu og fá að launum gómsætan mat og kaffi frá eldhúsinu.
Framundan er kvöldvaka þar sem Villiöndin stígur á stokk með sín frægu leikrit, syngjum söngva, heyrum hugleiðingu og skemmtum okkur saman. Eftir kvöldvöku ætlum við í ævintýraferð inn í skóg þar sem við munum kveikja varðeld, grilla sykurpúða og heyra næsta kafla í framhaldssögunni.
.
Matseðill dagsins:
Morgunmatur: Morgunkorn með mjólk og súrmjólk.
Hádegismatur: Kjötbollur, kartöflumús og salat
Kaffi: Kaka, karamellustangir og döðlubrauð
Kvöldmatur: Kjúklingaborgarar
Kvöldkaffi: Sykurpúðar og kex
Minnum á að myndir úr flokknum birtast hér: Myndir úr Vatnaskógi
Kveðja úr Skóginum,
Ástráður Sigurðsson