Vindáshlíð 3.fl. Veisludagur

Í morgun voru stelpurnar formlega orðnar Hlíðameyjar, eftir að hafa gist samfellt í 3 nætur og því var fagnað með Cocopufs í morgunmat. 

Þar sem var rigning þá héldum við fánahyllingu innanhúss og fórum svo á Biblíulestur að heyra um blindu mennina og fílinn (góð saga – endilega spyrjið þær um hana). 

Eftir það var haldið niður í íþróttahús þar sem keppt var um 1-2 sæti í brennó og svo 3-4 sætið, til mikils er að vinna því það herbergi sem verður í 1.sæti fær að keppa við foringjana á morgun. 

Í hádegismat var svo mexikósúpa með osti og snakki, heldur betur gott að fá heita súpu þar sem enn var rigning og hálf kalt. Eftir það var farið aftur í íþróttahús í TOPMODEL hönnunarkeppni og sýningu úr plastpokum og einhverju tilfallandi. 

Í kaffinu fengu þær súkkulaðiköku og kryddbrauð og svo hófst hárgreiðslukeppni, vinagangur og allar að gera sig klárar í veislukvöld. 

Pizza í kvöldmat, verðlaun veitt fyrir íþróttakeppnir vikunnar, ratleik, brennó og fleira og svoooo veislukvöldvaka í boði foringja sem voru hver öðrum fyndnari í hinum ýmsu leikritum. 

Ís og saga í kvöldkaffi – bænó og miserfitt að fara að sofa, þar sem margar eru komnar alveg á yfirsnúning af þreytu þá var stutt í smá tár. En foringjarnir okkar eru meistara knúsarar og á endanum sofna alltaf allar. 

Sjáumst á morgun á Holtavegi sirka um 14.30 

Bestu kveðjur, Hanna Lára forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum