Ævintýraflokkur I – Þriðja og síðasta frétt

Veisludagur

Þá er síðasti heili dagurinn hafinn hér hjá okkur í Vatnaskógi og dagskráin er þétt. Brekkuhlaup í frjálsum íþróttum, þythokkímót, Kristalsbikarinn (bikarkeppni í knattspyrnu), bátar og veiðar og ævintýri í skóginum svo eitthvað sé nefnt. Eftir hádegi verður lögð áhersla á ævintýradagskrá eins og Mr.Beast Challenge og ultimate frisbee. Drauma- og stjörnulið keppa einnig í knattspyrnu seinna í dag og svo verður boðið upp á vatnafjör og heita potta fram að kvöldmat. Þetta og meira framundan hér í Vatnaskógi.

Dagskrá kvöldsins er svo eitthvað í þessa átt. Veislumatur um kvöldið, myndataka og kvöldvaka sem er af lengri og dýrari gerðinni, með bikarafhendingu, Biblíuspurningakeppni, leikritum, Sjónvarp Lindarrjóðri og léttu skonrokki að hætti foringjanna. Svo eigum við eitt óvænt útspil fyrir drengina í kvöldkaffinu.

Matseðill

Fimmtudagurinn 25. júní – veisludagur

Morgunverður: Morgunkorn og súrmjólk
Hádegisverður: Kjötbollur, stappa og sósa
Síðdegishressing: Veislukaka, smákaka og brauðbollur
Kvöldverður: Schnitzel og veglegt meðlæti + baukur
Kvöldhressing: Kex og mjólk

Miðvikudagurinn 24. júní

Morgunverður: Rjómalagað kakó, nýbakað brauð og álegg
Hádegisverður: Ýsa í raspi, sósa og salat
Síðdegishressing: Skinkuhorn, karamellulengjur og New York súkkulaðibitakaka
Kvöldverður: Grillaðar pylsur
Kvöldhressing: Ávextir og kex

Dagskráin á heimkomudegi

Drengirnir hafa verið vaktir kl. 9:00 á morgnana en á brottfarardag er venja að gefa þeim ögn lengri svefn. Haninn mun því gala
kl. 09:30, þá munu drengirnir fara í morgunmat. Eftir það pakka þeir í töskur, finna dótið sitt og tæma herbergin. Því næst halda þeir svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki. Því næst verður haldið í hádegismat, í flatbökuveislu að hætti Vatnaskógar og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.

Matseðill

Föstudagurinn 26. júní

Morgunverður: Morgunkorn og mjólkurvörur, kakó og brauð
Hádegisverður: Pizza og ís í eftirrétt

Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.

Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.

Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.

Þetta er síðasta færslan frá 4. flokki 2026. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 4. flokk getur þú sent tölvupóst á [email protected] eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK á Íslandi, sími 588 8899.

Myndasíðan okkar er hér fyrir neðan.

Myndir úr Vatnaskógi

Með virðingu og þökk,
Hreinn Pálsson, forstöðumaður

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum