Vindáshlíð 3.fl – dagur 3

Hæhæ og hó

Allar sváfu vel og mikið – langflestar alveg til 9, sem er gott því maður þarf mikla orku til að vera á fullu í prógrammi allan daginn og fram á kvöld. 

Sem betur fer kom rigning í nótt svo að við vorum ekki bitnar eins mikið en þó er verið að smakka á einhverjum ennþá og fá þær ofnæmistöflu og mildison á bitin ef þeim klæjar. 

Dagurinn byrjaði hefðbundið – með að vera vaktar við stuðtónlist, morgunmat og fánahyllingu svo Biblíulestur. Þar fræddumst við áfram um þakklætið, kærleikan og að við höfum allar einhverja hæfileika, ef við höfum ekki fundið þá ennþá þá mun koma að því. Engin er yfir aðra hafin og við ætlum að koma fram við aðra eins og við viljum láta koma fram við okkur. 

Kjúklingaborgarar og franskar í hádegismat sem runnu ljúflega niður í mannskapinn, sem var að fara að undirbúa sig fyrir Hliðarhlaup og göngu að réttunum, þar sem auðvitað var haldið í hefðina og dregið stúlkur í dilka. 

Eftir göngu var gott að gæða sér á nýbökuðum pizzasnúðum og jógúrtkökum og var þá tilkynnt um næstu brennóleiki sem voru útsláttarkeppni fyrir undanúrslit, íþróttakeppni sem var “krulla” á fótboltavellinum, geggjað föndur í föndurherbergi og skipulagt æfingar fyrir síðustu herbergin að undirbúa atriði fyrir kvöldvöku. 

Í kvöldmat var píta með hakki og grænmeti – það er bara eins og við séum alltaf að borða – en jú eins og hefur komið fram þá eru þessar skvísur á fullu allan daginn og þá þarf að borða mikið til að hafa orku. 🙂 

Það var stórskemmtileg kvöldvaka í kvöld eins og hin kvöldin –  mikið sungið, hlegið, leikrit og leikir sem gaman var að fylgjast með. 

Á Huglu var rætt um fyrirgefninguna, hvað er mikilvægt að kunna að biðjast afsökunar og viðurkenna mistök eins og að geta fyrirgefið öðrum og vera ekki langrækin eða hefnigjörn.

Margar þreyttar eftir daginn og fegnar að komast upp í rúm á meðan aðrar áttu aðeins erfiðar með að sofna. 

Frábærar stelpur sem þið eigið og dásamlegt að vera með þeim, mikil lærdómur að fara að heiman og gista í nokkra nætur og deila herbergi með fullt af öðrum stelpum, taka tillit, sýna virðingu og umhyggju og geta leyst úr ágreiningi sem upp getur komið. 

Hlökkum til að eiga veisludag og kvöld á morgun með þeim…

Kærleikskveðjur úr Hlíðinni, Hanna Lára forstöðukona 

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum