
Heil og sæl kæru foreldrar/forráðamenn

Hér voru flestar vaknaðar fyrir 9 í morgun þegar átti að vekja þær og allar í flottu stuði, sváfu vel og voru glaðar.
Þar sem við báðum um gott veður í gær þá fengum við það aðeins í bakið í nótt – þar sem var alveg logn og átti því lúsmýið greiða leið að okkur og smökkuðust sumar mun betur en aðrar. Því erum við búnar að gefa ofnæmistöflur, mildison og afterbite – en enginn hefur þó tapað gleðinni – vonum að það haldist bara svoleiðis.
Morgunmatur var 9.30 – fánahylling og svo Biblíulestur þar sem kynntumst aðeins Biblíunni, hvernig hún skiptist og um hvað hún er í grófum dráttum. Við ræddum um þakklæti og hvað við gleymum oft að þakka fyrir allskonar sem við teljum stundum sjálfssagt. Við ræddum um kærleikann og hvað hann skiptir miklu í lífinu, að sýna öðrum umburðalyndi og virðingu. Stelpurnar hlustuðu vel og tóku vel undir söngvana – komust í góðan gír fyrir áframhaldandi brennókeppni, íþrótti, leiki og föndur.
Í hádegismat var steiktur fiskur, kartöflubátar, grænmeti og ískalt vatn. Stelpurnar borðuðu vel – enda þarf maður mikla orku fyrir allt þetta fjör.
Farið var í ratleik í útiveru þar sem herbergin fóru saman á milli stöðva að leysa hinar ýmsu þrautir. Veðrið var skýjað og pínu kalt en þær létu það nú ekki stoppa sig. Svo var komið inn í dásemdarkaffitíma þar sem voru snúðar með glassúr og bananabrauð í boði með djús að drekka.
Eftir kaffi voru áfram íþróttir, brennó, föndur, vinabönd og voru næstu herbergi að undirbúa atriði fyrir kvöldvöku.
Stelpurnar fengu sér síðan lasagna og hvítlauksbrauð í kvöldmat – eftir matinn fóru þær á stjá að spreyja flugnaspreyi í herbergin og gangana til að vera viðbúnar að mæta flugum næstu nætur við mismikinn fögnuð stelpnanna (þar sem lyktin var mjöööög sterk).
Kvöldvakan gekk vel – dansað, sungið – horft á leikrit og hlegið og klappað.
Eftir dásamlegan dag var þreyta farin að síga á marga þegar var farið að hátta, pissa og bursta – en þá skall á þrusupartý þar sem dansað var uppi á borðum og mikið fjör.
Nú eru langflestar sofnaðar og sofa vonandi vel og lengi (eða allavega til 9).
Munið að skoða reglulega myndasíðuna – því það bætist reglulega í albúmið okkar.
Kærleikskveðjur, Hanna Lára forstöðukona