2. leikjaflokkur – Veislu- og heimferðardagur

Veisludagurinn í gær var alveg dásamlegur. Stelpurnar vöknuðu glaðar og spenntar og ánægðar eftir óvænt náttfatapartý kvöldið áður. Fengum frábært veður og eftir hefðbundna morgundagskrá var boðið uppá pastasalat í hadegismatinn. Í morgunstundinni var lesin saga úr Nýja testamentinu um Sakkeus en sagan fjallar um það að allir eiga skilið annað tækifæri og að enginn er of týndur fyrir kærleika og fyrirgefningu.

Eftir hádegismatinn var skemmtilegur eltingaleikur sem innihélt líka þrautir. Stelpunum finnst alltaf gaman í svona leikjum og vildu helst hafa þá fleiri. Kaffitíminn var snæddur utandyra og í boði voru hinar sívinsælu Ölversbollur, bananabrauð og sjónvarpskaka. Eftir kaffi var síðan komið að því að undirbúa sig fyrir veislukvöldverð. Heiti pottuinn var opinn og kærkominn í góða veðrinu. Það er hefð hér í Ölveri að hafa pizzu í matinn á veislukvöldi og mættu stelpurnar í sínu fínasta pússi inní fallega skreyttan veislusalinn. Að kvöldmat loknum var komið að síðustu kvöldvöku flokksins, sjálfri veislukvöldvökunni en hún er alltaf mög skemmtileg og stelpurnar bíða spenntar enda stíga foringjar á stokk með fyndin og skemmtileg leikrit. Í kvöldkaffi fengu stelpurnar rice crispies köku og svo var komið að síðasta bænaherberginu með bænakonu þar sem var lesið, sungið og farið í leiki fyrir kærkominn svefn.

Upp er runninn heimferðardagur, enn einn dýrðardagurinn. Mikið sem við erum búnar að vera heppnar með veður. Framundan er vakning, morgunmatur og fánahyllingu. Þvínæst er komið að því að pakka niður fyrir heimferð. Síðan er síðasta morgunstundin þar sem við förum yfir flokkinn, hvað var skemmtilegt og hvað það er sem við tökum með okkur héðan úr Ölveri.

Úrslitakeppnin í brennó fer síðan fram fyrir hádegismat og sjálfur foringjabrennóinn en þá eru allar stelpurnar saman í liði á móti foringjunum. Í hádegismat verður grillveisla utandyra og verða grillaðar pylsur.

Rútan fer síðan af stað á Holtaveginn um kl 14 og þær sem verða sóttar þarf að sækja fyrir þann tíma.

Takk fyrir að treysta okkur og leyfa okkur að kynnast stelpunum ykkar, margar hafa komið áður en þónokkrar voru að koma í fyrsta skipti. Við erum þakklátar fyrir þessar flottu Ölversstelpur sem hafa lært um kærleika, vináttu, styrkleika, gildi og svo margt fleira af veru sinni hér í Ölveri.

Þangað til næst,
Svava Sigriður Svavarsdóttir, forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum