
VEISLUDAGUR
Þá er síðasti heili dagurinn hafinn hjá okkur í Vatnaskógi. Dagskráin er þétt að vanda: brekkuhlaup í frjálsum íþróttum, bátar og veiðar, íþróttahús, listasmiðja o.s.frv. Eftir hádegi verður sannkölluð knattspyrnuveisla sem líklega mun slá við HM stemmningunni sem víða ríkir í dag. Á knattspyrnuvellinum munu Stjörnu- og Draumaliðin etja kappi við lið foringja í fótbolta en það þykir einstaklega sterkt þessa dagana. Búast má við svita, tárum og brosum. Heiðurinn er sannarlega undir hjá foringjaliðinu og montréttur andstæðinganna tryggður ef svo ólíklega vill til að þeir vinni. Sjáum hvernig þetta fer.
Veislumatur er um kvöldið, myndataka og hátíðarkvöldvaka af lengri og dýrari gerð með bikarafhendingu, Biblíuspurningakeppni, leikritum og Sjónvarpi Lindarrjóðri.
MATSEÐILL DAGSINS
Morgunverður: Morgunkorn og hafragrutur
Hádegisverður: Kalkúnabollur og kartöflumús
Kaffi: Döðlubrauð, smákaka og eplabaka
Kvöldverður: Kjúklingasnitsel og kartöflubátar
DAGSKRÁIN Á HEIMKOMUDEGI
Eftir vakningu munu drengirnir fara í morgunmat, pakka í töskur, finna dótið sitt og halda svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki. Því næst verður haldið í hádegismat, í flatbökuveislu að hætti Vatnaskógar og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.
Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi rétt fyrir kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.
Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir við inngang matskálans. Endilega látið vita sem fyrst ef óvæntar breytingar verða á þessu. Símanúmerið er 433 8959.
Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.
Þetta er síðasta færslan frá 3. flokki 2026. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 3. flokk getur þú sent tölvupóst á [email protected] eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.
Myndasíðan verður áfram hér á myndasíðunni.
Með virðingu og þökk,
Jón Ómar Gunnarsson.