
Það er svo dýrmætt að hitta stelpurnar á Holtaveginum og fara með þeim í rútunni í Ölver. Ferðin gekk vel og spenningurinn allsráðandi. Þegar við komum í Ölver var byrjað á að fara yfir nokkur praktísk atriði og svo var raðað í herbergi og komið sér fyrir. Herbergin eru 5 og í þeim dvelja 8-9 stelpur.
Í hádegismat var boðið upp á skyr og pizzabrauð og tóku stelpurnar vel til matar síns. Eftir hádegismat var farið í göngutúr um lóðina til þess að kynnast þessu yndislega svæði og sjá hvað Ölver hefur uppá að bjóða. Hér er t.d. hægt að fara i leiktæki, í fótbolta, gönguferð í skóginum, hér er aparóla auk allra frjálsu leikjanna sem hægt er að finna uppá í yndislegri náttúru. Einnig var farið yfir brennóreglurnar enda brennó keppnin einn af hápunktunum.
Í kaffitímanum var boðið uppá rice cispies köku og og skúffuköku ásamt sólberjadjús. Eftir kaffitímann var hin vinsæla Top model keppni og gaman að sjá hvað stelpurnar eru skapandi og með gott hugmyndaflug. Fram að kvöldmat var frjáls leikur og voru flestar inni að leika enda frekar blautt úti. Eitt herbergi á dag sér um leikrit á kvöldvöku og var þessi tími nýttur í undirbúning hjá fyrsta herberginu.
Í kvöldmat var hakk og regnboga spagettí sem er nú alltaf vinsælt enda voru stelpurnar duglegar að borða. Eftir kvöldmat var komið að fyrstu kvöldvöku flokksins. Það var mikið sungið ásamt því að horfa á leikrit frá leikherbergi og einnig voru foringjar með eitt leikrit en það er alltaf mjög vinsælt að sjá foringjana sprella. Það var farið að spyrjast út að mögulega yrðu engar bænakonur og þetta þótti stelpunum auðvitað algerlega afleit hugmynd enda bænakona mikilvæg fyrir hvert herbergi. Engu að síður voru stelpurnar senda í ból eftir kvöldvöku og kvöldkaffi og gerðu þær það en forstöðukona gekk á milli herbergja og lofaði að reyna að fá foringjana til að standa sig og vera bænakonur. Stuttu seinna komu síðan foringjar á gangana hoppandi og skoppandi með tónlist í botni og auglýstu náttfatapartý! Dansað var við nokkur lög áður en forstöðukona og foringjar voru með leikþátt um mikilvægi þess að þær myndu vera bænakonur. Síðan fékk hvert herbergi að vita um sína bænakonu og brutust út mikil fagnaðarlæti.
Eftir góðan dag sem var hlaðinn spennu lögðust sáttar stelpur á koddann. Örlítil heimþrá lét á sér kræla, það er eðlilegt og erum við mjög reynd í að takast á við það með stelpunum. Uppúr miðnætti var komin ró í húsið þar til stelpurnar voru vaktar klukkan 9 í morgun. Í framhaldi voru síðan fastir liðir, morgunmatur, fánahylling, tiltekt í herbergjum og biblíulestur. Á biblíulestri lærðu stelpurnar um Kristrúnu Ólafsdóttur sem var upphafskona Ölvers og báðum við fyrir vikunni framundan og þökkuðum fyrir Kristrúnu og Ölver.
Nú er brennókeppni Ölvers formlega hafin og mikil spenna fyrir henni. Framundan er svo stútfullur dagur af ævintýrum, gleði og glaum.
Bestu kveðjur
Svava Sigríður Svavarsdóttir, forstöðukona