Vetrarstuð í Vatnaskógi

Helgina 20,-22. mars verðum við með Vetrarstuð í Vatnaskógi fyrir öll börn á aldrinum 10-12 ára sem elska ævintýri og vilja efla sjálfstraustið og samskiptafærni.

Helgin er fyrst og fremst hugsuð sem skemmtileg samvera og öll dagskrá miðar að því að börn séu að styrkja sjálfsmyndina og læra með því að takast á við ýmis verkefni í gegnum leik og samveru.

Helgin er í umsjá fagfólks sem hefur áratugareynslu af sumarbúðarstarfi, meðal annars sértækum sumarbúðum fyrir börn með ADHD og skyldar áskoranir.

Því gæti þessi helgi hentað börnum með ADHD sérstaklega vel.

Skráning er hafin á https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=12795

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum