83 eldhressar stelpur lögðu af stað upp í Vindáshlíð. Við komuna var þeim úthlutað herbergi og bænakonu og svo byrjaði fjörið með trompi. Brennó, vinabönd, leikir og stuð voru einkennandi þennan daginn. Veðrið var ekkert til að hrópa húrra fyrir en það stoppaði okkur ekki. Það voru pítur í kvöldmatinn og svo skemmtu stelpurnar sér vel á kvöldvökunni yfir söng og leikritum.
Kær kveðja Ásta og Pálína