21 ágúst
Lausir miðar

Kvöldvaka sumarbúðanna

Um Viðburðinn

Eftir sex ára hlé snýr einn skemmtilegasti fjölskylduviðburður sumarsins loksins aftur!
Við bjóðum öllum börnum, unglingum, foreldrum, öfum, ömmum og vinum sumarbúðanna hjartanlega velkomin á Kvöldvöku sumarbúða KFUM og KFUK þar sem við fögnum frábæru sumri saman.❤️
Á kvöldvökunni verða sýnd bestu leikritin og atriðin úr sumarbúðunum í sumar.
– Foringjar frá öllum sumarbúðunum sameina krafta sína á sviðinu.
– Sungin verða uppáhalds sumarbúðalögin okkar.
– Hoppukastalar, andlitsmálning og ýmislegt skemmtilegt.
– Matur og sjoppa á svæðinu.
– Aðgangur er FRÍR!
Þetta verður ekta sumarbúðakvöldvaka eins og við kunnum best að gera! Full af gleði, söng, leikjum, hlátri og ógleymanlegri sumarbúðastemningu.
Taktu fjölskylduna með og komdu að fagna sumrinu með okkur! ☀️
Við hlökkum ótrúlega mikið til að sjá ykkur öll á Holtavegi 28 klukkan 18:00!! 💙

21. ágúst 2026
18:00 - 20:00
Holtavegur 28

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum