Kvennaflokkur í Vindáshlíð
Helgina 28. til 30. ágúst verður kvennaflokkur í Vindáshlíð: Ofin af Guði. Þar verður frábær dagskrá, ljúffengur matur og yndislegur félagsskapur.
Í ár verður einnig hægt að mæta degi fyrr, fimmtudaginn 27. ágúst, og taka þátt í vinnuflokknum Krafta- og kraftaverkakonur. Í boði verða fjölbreytt og skemmtileg verkefni svo allar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hægt er að ganga frá skráningu í kvennaflokkinn hér: https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=12782
Þær sem vilja líka skrá sig í vinnuflokkinn geta smellt hér:
– Mæting á fimmtudegi: https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=12896
– Mæting snemma á föstudegi: https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=12897
Dagskrá og nánari upplýsing má finna á http://www.vindashlid.is