Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin sunnudaginn 31. maí næstkomandi í Vindáshlíð.
DAGSKRÁ
Glæsilegar veitingar á boðstólnum frá klukkan 14:00 til 17:00.
14:00 Fánahylling
14:10 Fjölskyldumessa í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð
14:30-15:30 Blöðrulistamaður
Hoppukastalar, skoðanaferð um svæðið og hinn æsispennandi ratleikur sem verður út um allt svæðið. Allir sem klára ratleikinn fá nafnið sitt í pott og vinningurinn er hvorki meira né minna en gjafabréf í flokk í Vindáshlíð. Hver verður sú heppna?
VERÐ
0 til 5 ára: ókeypis
6 til 15 ára: 2000 kr
16 ára og eldri: 3500 kr