Yfir sumarmánuðina stendur KFUM og KFUK fyrir skemmtilegum og fjörugum leikjanámskeiðum, sem stuðla að auknum þroska til líkama, sálar og anda. Leikjanámskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 6–9 ára. Mikil áhersla er lögð á vináttu, kærleika og virðingu hvert fyrir öðru. Unnið með kristið siðferði í hugsunum, orðum og gjörðum.
Leikjanámskeiðin verða haldin í Lindakirkju í Kópavogi og félagsheimili KFUM og KFUK í Reykjanesbæ (Hátún 36).
Á hverjum degi er boðið upp á vandaða og fjölbreytta dagskrá. Má þar nefna útivist, föndur, íþróttir, leiki, vettvangsferðir og fræðslu um lífið og tilveruna út frá kristilegu sjónarmiði. Lögð er áhersla á að hvert barn fái að njóta sín sem best við leiki og störf. Síðasta dag námskeiðis er boðið upp á uppskeruhátíð þar sem grillaðar verða pylsur og safi, andlitsmáling og margt annað. Námskeiðin standa frá kl. 9:00–16:00 og húsnæðin opna kl. 8:45. Börnin hafa sjálf með sér nesti fyrir allann daginn; morgunkaffi, hádegismat og síðdegiskaffi.
Upplýsingar um námskeið og dagsetingar má finna hér: https://sumarfjor.is/