1. grein: Heiti og tengsl við KFUM og KFUK
Starfsstöðin heitir KFUM og KFUK Suðurnes og er sjálfstæð starfsstöð innan KFUM og KFUK á Íslandi.
2. grein: Skilgreining
Starfsstöðin er staðsett í Reykjanesbæ og starfar á grundvelli laga Kristilegs félags ungra manna og kvenna á Íslandi. Skammstafað KFUM og KFUK á Íslandi.
3. grein: Markmið
Á grundvelli 1. gr. laga KFUM og KFUK á Íslandi starfar KFUM og KFUK Suðurnes einkum meðal barna, unglinga og ungs fólks. Markmið starfsins er að vekja trú á Krist og kalla til þjónustu í ríki hans, efla trúarlíf og siðferðiskennd og hlynna að andlegri, líkamlegri og félagslegri velferð einstaklingsins. Orð Guðs skal skipa öndvegi í öllu starfi starfsstöðvarinnar.
4. grein: Leiðir að markmiðum
Starfsstöðin skal vinna að markmiðum sínum með skipulögðu barna- og unglingastarfi og á annan þann hátt sem stjórnin ákveður hverju sinni í samræmi við markmið þessara laga.
5. grein: Skipan stjórnar
Stjórn starfsstöðvarinnar skal skipuð fimm stjórnarmönnum sem kosnir eru á aðalfundi starfsstöðvarinnar til þriggja ára og skulu þeir allir vera fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi. Ganga þeir úr stjórninni á víxl þannig að einn stjórnarmeðlimur gengur út eftir eitt ár. Tveir stjórnarmenn eftir tvö ár og tveir stjórnarmenn eftir þrjú ár og helst svo sama röð áfram. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Fundur er lögmætur þegar a.m.k. þrír stjórnarmenn mæta.
6. grein: Kjörnefnd
Stjórn starfsstöðvarinnar skipar tveggja manna kjörnefnd einn af hvoru kyni, eigi síðar en mánuð fyrir aðalfund. Kjörnefnd setur upp kjörlista fyrir stjórnarkjör á aðalfundi með hliðsjón af uppástungum félaga KFUM og KFUK á Íslandi enda berist þær henni a.m.k. viku fyrir aðalfund.
7. grein: Boðun aðalfundar og dagskrá
Aðalfundur skal haldinn fyrir lok mars ár hvert og skal stjórnin boða til hans með tryggilegum hætti með minnst viku fyrirvara. Verði óeðlilegur dráttur á að stjórn starfsstöðvarinnar boði til aðalfundar getur stjórn KFUM og KFUK á Íslandi boðað til aðalfundar. Atkvæðisbærir eru fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi sem greitt hafa árgjald liðins starfsárs.
Á aðalfundi skal eftirfarandi vera á dagskrá:
- Starfsskýrsla stjórnar lögð fram til umræðu og afgreiðslu.
- Reikningar samþykktir af stoðunarmönnum lagðir fram til umræðu og afgreiðslu.
- Fjárhags- og starfsáætlun kynnt og lögð fram til umræðu og afgreiðslu.
- Afgreiðsla lagabreytinga, samanber 10. grein.
- Stjórnarkjör, samanber 5. og 6. grein.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Önnur mál.
8. grein: Hlutverk stjórnar
Stjórn starfsstöðvarinn skipuleggur, undirbýr og vakir yfir öllu starfi starfsstöðvarinnar í samræmi við markmið laganna. Stjórnin sér um allar framkvæmdir sem markmið starfsstöðvarinnar útheimtir. Formaður hefur forgöngu um störf stjórnar og boðar hana til fundar svo oft sem þurfa þykir. Ritari heldur gjörðabók og færir í hana samþykktir stjórnarfunda og aðalfunda og annað sem máli skiptir í umræðum. Hann tekur saman starfsskýrslu stjórnarinnar fyrir hvern aðalfund.
Gjaldkeri fylgist með reikningshaldi og fjárhagsstöðu starfsstöðvarinnar og leitast við að ávaxta sjóði starfsstöðvarinnar á sem hagkvæmastan hátt. Eigi má ávaxta sjóði starfsstöðvarinnar nema í bönkum og skráðum verðbréfum. Þó skal stjórninni heimilt, með samþykki stjórnar KFUM og KFUK á Íslandi, að koma sjóðum starfsstöðvarinnar fyrir á annan hátt ef hún telur það nauðsynlegt fyrir öryggi sjóðanna eða af öðrum brýnum ástæðum. Aldrei má veita lán úr sjóðum starfsstöðvarinnar til einstaklinga eða út fyrir raðir KFUM og KFUK á Íslandi.
9. grein: Ráðstöfun eigna
Leggist starf KFUM og KFUK Suðurnes niður skal stjórn KFUM og KFUK á Íslandi ráðstafa eigum starfsstöðvarinnar. Stjórn starfsstöðvarinnar getur ekki gengið úr KFUM og KFUK á Íslandi með eignir hennar. Ekki má veðsetja eignir starfsstöðvarinnar eða leggja í verulegar fjárfestingar nema með samþykki stjórnar KFUM og KFUK á Íslandi.
10. grein: Lagabreytingar
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þurfa 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna að samþykkja lagabreytingar. Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn starfsstöðvarinnar skriflega eigi síðar en í janúarlok. Þær skulu kynntar í fundarboði og liggja frammi í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Íslandi viku fyrir aðalfund. Lagabreytingar öðlast því aðeins gildi að stjórn KFUM og KFUK á Íslandi samþykki þær.
Samþykkt á aðalfundi 8. mars 2022.