Sunnudaginn 13. desember, frá klukkan 12:00 til 16:00, verður jóladagur í Vindáshlíð með jólamarkaði, jólatrjáasölu og notalegri jólastemningu fyrir alla fjölskylduna!
Heyrst hefur að fallegustu jólatrén komi úr skóginum í Vindáshlíð. Fátt er skemmtilegra en að rölta um skóginn, finna rétta jólatréð og höggva það sjálf til að prýða stofuna heima.
Jólasveinarnir verða á stjá klukkan 14:00, ljúffengar veitingar og jólaratleikur út um allan skóg.
Á jólamarkaðnum verður meðal annars hægt að kaupa sörur, hið vinsæla Vindáshlíðarsmákökudeig til að baka heima, smákökur, sultur, lagtertur og annað góðgæti.
Verðskrá 🌟
Jólatré:
– Minni en 150 cm: 7000 kr
– Stærri en 150 cm: 10.000 kr
Kaffihlaðborð:
– Fullorðnir: 2500 kr.
– 6 til 16 ára: 1500 kr.
– Frítt fyrir börn yngri en 6 ára.
Hlökkum til að sjá ykkur öll í Jóla-Hlíðinni! 🎄