25 september
Lausir miðar

Hátíðar- og inntökufundur KFUM og KFUK

Um Viðburðinn

Föstudaginn 25. september verður hinn árlegi Hátíðar- og inntökufundur KFUM og KFUK haldinn í félagsheimilinu okkar að Holtavegi 28.
Húsið opnar kl. 18:30
Dagskráin hefst kl. 19:00

Það verður sannkölluð hátíðarstemning þar sem við komum saman, njótum góðra veitinga og skemmtunar!
Jónas Breki Kristinsson og Guðjón Daníel Bjarnason verða veislustjórar kvöldsins og halda utan um fjörið.
Dóra og Döðlurnar mæta á svæðið og taka nokkur vel valin lög fyrir okkur og hver veit nema einn og einn ABBA-smellur fái að fljóta með!
Sr. Matthildur Bjarnadóttir flytur hugvekju kvöldsins.
Fimm stjörnu foringjar fá viðurkenningu fyrir frábært starf.
Jakob Freyr Einarsson sér um ljúfa tóna og góða stemningu.

Hjarta kvöldsins eru auðvitað félagsmennirnir okkar bæði gömul og góð andlit og ekki má gleyma nýju félögunum sem við bjóðum sérstaklega velkomna í hópinn.
Það er enginn aðgangseyrir, en tekið verður á móti frjálsum framlögum til að mæta kostnaði við kvöldið.

Við hlökkum mikið til að sjá ykkur á Holtaveginum og eiga saman fallegt, skemmtilegt og eftirminnilegt kvöld!
Endilega skráið ykkur sem fyrst. Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 24. september.

25. september 2026
19:00 - 22:00
Holtavegur 28

aðrir viðburðir

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum