Nú styttist í Sæludaga í Vatnaskógi, viðburð sem að margar fjölskyldur bíða spenntar eftir ár hvert.
Sæludagar er áfengislaus fjölskylduhátíð og er haldin í Vatnaskógi ár hvert um Verslunarmannahelgina. Að vanda er fjölbreytt dagskrá í boði og allir geta fundið sér eitthvað við hæfi, þessi yngstu, unglingarnir og gamla settið.
Friðrik Dór , Leiksýninginin Innblástur, bátar og vatnafjör, bingó, brekkusöngur, fræðsla, hæfileykasýning, kassabílarallý, knattspyrna, kvöldvökur, leiktæki, varðeldur, víðavangshlaup og whipeout-braut.
Dagskrá er hægt að sjá hér
Tjaldsvæðin eru stór og er tjaldstæði innifalið í miðaverði. Einnig er hægt er að kaupa aðgang að rafmagni. Heimilt er að koma gistieiningum (tjöldum, fellihýsium og hjólhýsum) fyrir á miðvikudegi á milli 19:00 og 21:00. Ekki er í boði að gista. Verð fyrir slíka þjónustu er kr. 2.000.-
Verð á Sæludaga 2026
Helgarpassi fyrir 18 ára og eldri kr. 15.000.-
Helgarpassi fyrir 12 til 17 ára kr.9.000.-
Dagspassi fyrir 18 ára og eldri kr. 8.000.-
Dagspassi fyrir 12 til 17 ára. kr. 5.000.-
Frítt fyrir 11 ára og yngri.
Rafmagn fyrir alla helgina kr.5.000.-