Vindáshlíð býður upp á frábæra aðstöðu fyrir alls konar viðburði. Staðurinn hentar einstaklega vel fyrir námskeið, samkomur, mót, fjölskyldu- og vinahópa, eða aðra viðburði.
Í Vindáshlíð er gistiaðstaða fyrir allt að 100 manns í rúmum/kojum. Hægt að bæta við dýnum ef óskað er eftir fyrir stærri hópa.
Aðalskálinn var byggður árið 1951 og er á tveimur hæðum. Árið 2003 var byggð viðbygging við skálann og er hún einnig á tveimur hæðum. Þar er gistirými fyrir 82 dvalargesti í ellefu herbergjum útbúin með kojum. Auk þess eru níu starfsmannaherbergi með gistirými fyrir um 20 manns í rúmum. Í aðalskálaum er fullbúið eldhús ásamt uppþvottaaðstöðu. Matsalurinn tekur um 80 manns í sæti. Í húsinu er einnig setustofa með arni, og samkomusalur með skjávarpa.
Íþróttahúsið okkar var tekið í notkun árið 1978. Þar er íþróttasalur með körfuboltakörfum og boltageymslu. Í anddyrinu er þythokkí-, borðtennis- og fótboltaborð.
Kirkjan á staðnum er gamla Hallgrímskirkjan sem var á Saurbæ við Hvalfjarðarströnd. Hún var reist árið 1878 en flutt í Vindáshlíð 1957 og hefur þjónað þar síðan sem helgistaður fyrir þátttakendur í sumarbúðunum í Vindáshlíð.
Á útisvæðinu er aparóla, apabrú, þriggja holu folfvöllur, lækur, fótboltavöllur, rólur, stangartennis, gokart kassabílar og skemmtilegar skógarleiðir. Það eru einnig mjög fallegar gönguleiðir hjá Vindáshlíð.
Athugið að öll neysla og meðferð áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð í Vindáshlíð. Brot gegn þessari reglu varðar tafarlausri brottvikningu af staðnum.
Fyrir nánari upplýsingar og verðskrá má hafa samband við Helgu Sóleyju framkvæmdastjóra á [email protected].
Við hlökkum til að bjóða ykkur velkomin í Vindáshlíð!