Á uppstigningardag, fimmtudaginn 14. maí verður vorhátíð Kaldársels, þá verður mikið fjör sérstaklega fyrir yngri kynslóðina.
Dagskrá:
Kl. 13:00 Fánahylling
Kl. 14:00 Útisamkoma. Ásgeir Páll Ágústsson útvarpsmaður og stuðbolti mætir með gítarinn og leiðir samsöng. Sr. Inga Harðardóttir prestur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði flytur hugvekju. Samkoman verður færð inn ef illa viðrar.
Pylsur, djús og kaffi í boði (gegn frjálsum framlögum)
Hoppukastalar á svæðinu og auðvitað frábær tækifæri til leikja í náttúru Kaldársels.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Hlökkum til að sjá ykkur