Upphaf sumarbúðastarfs KFUK í Vindáshlíð er miðað við lok fjórða áratugarins, en má segja að allt frá fyrstu árum félagsins, sem stofnað var um aldamót nítjándu aldarinnar, hafi sumarstarf í einhverri mynd verið mikilvægur þáttur.

Árið 1938 var sumarstarf KFUK með dvalarflokk fyrir stúlkur í Straumi. Þar dreymdi stelpunum um að eignast framtíðar skála fyrir sumarstarfið, og úr því var samin saga. Sagan er látin gerast í fjarlægri framtíð og lýsir stórfenglegum sumardvalarstað í eigu KFUK stúlknanna, með skála sem er eins og ævintýrahöll, en staðinn nefna þær Furuhlíð. Í sögunni er skálanum meðal annars lýst svo: „Skálinn stendur á efsta hjalla ofarlega á barði suðaustan til í hlíðinni. Vestan af firðinum að sjá, ber hann tign sinni af hömrunum sem ævintýrahöll, en fyrir augum þeirrar æsku er kemur veginn vestur brekkur sunnan fjarðarins er Furuhlíð – draumalandið – dásamlega fagurt vafið gróðri í litskrúðri vonarinnar.“

Þessi draumaorð lýsa Vindáshlíð vel í dag. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan stúlkurnar dvöldu í Straumi. Saga Vindáshlíðar einkennist af hugrökkum og kröftugum konum sem höfðu þann draum að reka sumarbúðir KFUK fyrir stelpur landsins. Við njótum enn góðs af þeirra óeigingjörnu og forlátu vinnu.

Fyrsta ár sumarstarfsins í Vindáshlíð

Einn þungbúinn sunnudag í maímánuði árið 1947 lögðu ungar stjórnarkonur sumarstarfs KFUK í Kjósina að hitta Jón Ólafsson, bónda á Vindási í Kjós. Þær voru að leita af stað fyrir sumarstarfið og höfðu undanfarin sumur verið á flakki á Straumi, Skátafelli og Botnsdal.

Katrín Kristjánsdóttir, stjórnarkona, hefði verið falið að tala við Jón bónda og biðja um leyfi til að hafa sumarbúðir KFUK þá um sumarið á landareign hans í Vindáshlíð. Var þeirri málaleitan vel tekið og var leyfið fúslega veitt. Með Katrínu voru þær Helga Magnúsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Sigríður Sumarliðadóttir og Halldóra Guðmundsdóttir. Þá var einnig Þorgeir Jónsson frá Möðruvöllum með í för ásamt Guðmundi Sigurðssyni.

Helga var sú eina sem hafði komið í Vindáshlíð áður og var spennt að heyra hvernig hinum litist á staðinn. Á gömlum blöðum frá Helgu er að finna lýsingu hennar á því sem bærðist innra með henni á meðan þau riðu á hestum með ánni upp í Hlíðina: „Góði Guð, viltu láta sólina skína ef við eigum að vera hér.“ Þegar á staðinn var komið og Helga sveiflaði fætinum yfir hnakkinn til þess að stíga af baki, braust sólargeisli fram, aðeins yfir þeim á flötinni. Um leið segir Halldóra: „Hér andar Guðs blær.“

Unglingaflokkurinn var haldinn í Vindáshlíð það sumar. Lögðu stelpurnar af stað frá Amtmannsstíg laugardaginn 19. júlí. Vikan í Vindáshlíð leið viðburðarík og skemmtileg. Gönguferðir voru iðkaðar og næsta nágrenni Vindáshlíðar kannað. Farið var í leiki og var hornaboltinn vinsæll. Á hverjum morgni voru biblíulestrar, ýmist inni í stóra Skógarmannatjaldinu, eða í fallegu rjóðri og voru þeir í umsjá Halldóru. Stelpurnar gistu í tjöldum og ríkti sannkölluð útilegustemmning. Vegna góða veðursins fékk hún á sig rómantískan blæ.

Um fjörutíu stúlkur tóku þátt í fyrsta flokknum í Vindáshlíð og voru tjöldin tólf auk Skógarmannatjaldsins. Hverju tjaldi var gefið nafn og mun Helga Magnúsdóttir hafa átt hugmyndina af því. Þessi hugmynd færðist svo síðar á hvert herbergi þegar skálinn var reistur.

Texti og heimildir eru úr bókinni Hér andar Guðs blær sem gefin var út í tilefni 50 ára afmælis Vindáshlíðar.

Viltu styrkja starfið?

Framundan í Vindáshlíð eru umtalsverðar framkvæmdir til að tryggja að Hlíðin geti þjónað komandi kynslóðum jafn vel og hún hefur þjónað okkur hingað til. Auðvitað er gríðarlegur kostnaður fólginn í slíku og leitum við því leiða til að fjármagna komandi framkvæmdir, þar á meðal með stuðningi frá vinum okkar og velunnurum.

Styrkir

Vindáshlíð er almannaheillafélag og skv. lögum um almannaheillafélög er veittur skattaafsláttur af öllum styrkjum sem ná yfir 10.000 krónur á ári. Skrifstofa KFUM og KFUK sér um að skila inn öllum upplýsingum til skattsins í upphafi árs og kemur þetta sjálfkrafa fram á skattframtali hvers og eins.

Vilt þú taka þátt í uppbyggingu Vindáshlíðar?
Rknr: 0515-26-163800
kt. 590379-0429

Gjafakerfi Vindáshlíðar

Nú höfum við komið á fót gjafarkerfi þar sem fólk getur skráð sig til að fá senda valkröfu á heimabankann sinn í hverjum mánuði. Peningurinn sem kemur inn í gegnum gjafakerfið fer allur í sjóð eyrnamerktum framkvæmdunum.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum