1. grein: Heiti og tengsl við KFUM og KFUK
Starfsstöðin heitir KFUM og KFUK í Vestmannaeyjum og er sjálfstæð starfsstöð innan KFUM og KFUK á Íslandi.
2. grein: Skilgreining
Starfsstöðin er staðsett í Vestmannaeyjum og starfar á grundvelli laga Kristilegs félags ungra manna og kvenna á Íslandi, skammstafað KFUM og KFUK á Íslandi.
3. grein: Markmið
Á grundvelli 1. gr. laga KFUM og KFUK á Íslandi starfar KFUM og KFUK í Vestmannaeyjum einkum meðal barna, unglinga og ungs fólks. Markmið starfsins er að vekja trú á Krist og kalla til þjónustu í ríki hans, efla trúarlíf og siðferðiskennd og hlynna að andlegri, líkamlegri og félagslegri velferð einstaklingsins. Orð Guðs skal skipa öndvegi í öllu starfi starfsstöðvarinnar.
4. grein: Leiðir að markmiðum
Starfsstöðin skal vinna að markmiðum sínum með skipulögðu barna og unglingastarfi, mótum, útgáfu- og fræðslustarfi, fundarhöldum, fjáröflun og á annan þann hátt sem stjórnin ákveður hverju sinni í samræmi við markmið þessara laga.
5. grein: Skipan stjórnar
Stjórn starfsstöðvarinnar skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur varamönnum sem kosnir eru á aðalfundi starfsstöðvarinnar og skulu þeir allir vera fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
6. grein: Kjörnefnd
Stjórn starfsstöðvarinnar skipar tveggja manna kjörnefnd einn af hvoru kyni, eigi síðar en einum mánuði fyrir aðalfund. Kjörnefnd setur upp kjörlista fyrir stjórnarkjör á aðalfundi með hliðsjón af uppástungum félaga KFUM og KFUK á Íslandi enda berist þær henni a.m.k. viku fyrir aðalfund.
7. grein: Boðun aðalfundar og dagskrá
Aðalfundur skal haldinn fyrir lok mars ár hvert og skal stjórnin boða til hans með tryggilegum hætti með minnst viku fyrirvara. Verði óeðlilegur dráttur á að stjórn starfsstöðvarinnar boði til aðalfundar getur stjórn KFUM og KFUK á Íslandi boðað til aðalfundar. Atkvæðisbærir eru fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi sem greitt hafa árgjald liðins starfsárs.
Á aðalfundi skal eftirfarandi vera á dagskrá:
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu og afgreiðslu.
c) Ársreikningur félagsinn lagður fram til umræðu og afgreiðslu.
d) Fjárhagsáæltun næst starfsárs lögð fram til umræðu og afgreiðslu.
e) Afgreiðsla lagabreytinga, samanber 10. grein.
f) Stjórnarkjör, samanber 5. og 6. grein
g) Kjör skoðunamanna reikninga.
h) Önnur mál.
8. grein: Hlutverk stjórnar
Stjórn starfsstöðvarinnar skipuleggur, undirbýr og vakir yfir öllu starfi starfsstöðvarinnar í samræmi við markmið laganna. Stjórnin sér um allar framkvæmdir sem markmið starfsstöðvarinnar útheimtir. Formaður hefur forgöngu um störf stjórnar og boðar hana til fundar svo oft sem þurfa þykir. Ritari heldur gjörðabók og færir í hana samþykktir stjórnarfunda og aðalfunda og annað sem máli skiptir í umræðum. Hann tekur saman starfsskýrslu stjórnarinnar fyrir hvern aðalfund. Gjaldkeri fylgist með reikningshaldi og fjárhagsstöðu starfsstöðvarinnar og leitast við að ávaxta sjóði starfsstöðvarinnar á sem hagkvæmastan hátt. Eigi má ávaxta sjóði starfsstöðvarinnar nema í bönkum og skráðum verðbréfum. Þó skal stjórninni heimilt, með samþykki stjórnar KFUM og KFUK á Íslandi, að koma sjóðum fyrir á annan hátt ef hún telur það nauðsynlegt fyrir öryggi sjóðanna eða af öðrum brýnum ástæðum. Aldrei má veita lán úr sjóðum starfsstöðvarinnar til einstaklinga eða út fyrir raðir KFUM og KFUK á Íslandi.
9. grein: Ráðstöfun eigna
Leggist starfsemi og starfsstöðin niður skal stjórn KFUM og KFUK á Íslandi í samráði við sóknarnefnd Landakirkju í Vestmannaeyjum ráðstafa eignum hennar. Stjórn starfsstöðvarinnar getur ekki gengið úr KFUM og KFUK á Íslandi með eignir hennar. Ekki má veðsetja eignir starfsstöðvarinnar eða leggja í verulegar fjárfestingar nema með samþykki stjórnar KFUM og KFUK á Íslandi.
10. grein: Lagabreytingar
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þurfa 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna að samþykkja lagabreytingar. Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn starfsstöðvarinnar skriflega eigi síðar en í janúarlok. Þær skulu kynntar í fundarboði og liggja frammi í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Íslandi viku fyrir aðalfund. Lagabreytingar öðlast því aðeins gildi að stjórn KFUM og KFUK á Íslandi samþykki þær.
Samþykkt á aðalfundi starfsstöðvar KFUM og KFUK Vestmannaeyjum, 23. mars 2022