Upphafsbæn
Vertu Guð, faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.

Minnisvers
„Guð er ljós, og myrkur er alls ekki í honum.“ 1. Jóh. 1:5.

Aðalatriði
Við erum Guðs börn, elskuð af honum og Guð vill eiga samfélag við okkur og boðskapur hans og kærleikur hefur áhrif á hugarfar okkar og hvetur okkur til góðra verka í nafni kærleikans.

Hugleiðing
Lærisveinar Jesú
Lærisveinar Jesú voru tólf og þeir voru fyrstu fylgjendur Jesú og jafnframt fyrstu trúboðarnir sem báru út fréttirnar um að Jesús væri sonur Guðs og að hann hefði dáið á krossi fyrir syndir og misgjörðir allra manna, risið upp frá dauðum og stigið upp í himininn.

Einn þeirra, Jóhannes, sem skrifaði fjórar bækur í Nýja testamentinu ítrekar í skrifum sínum að Guð hafi komið í heiminn sem maðurinn Jesús Kristur. Hann segir: „Guð er ljós, og myrkur er alls ekki í honum.“ 1. Jóh. 1:5.

Hann boðar að ef við lifum í samfélagi við Jesú Krist og látum orð hans og boðskap lifa í hjörtum okkar að þá hefur það afleiðingar fyrir líf okkar og breytni. „Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt okkur, að við skulum kallast Guðs börn. Og það erum við.“ 1.Jóh.3:1.

Elskum hvert annað
Fyrst Guð elskar okkur svo mikið að hann er tilbúinn til að fórna eigin syni á krossinum svo að við megum lifa þá finnum við í hjarta okkar þörf og löngun til þess að sýna öðrum kærleika og ást.

Lærisveinninn Jóhannes heldur áfram að tala um þetta og segir: „Því er þetta sá boðskapur sem þið hafið heyrt frá upphafi: Við eigum að elska hvert annað“ 1. Jóh. 3.11.

Við sem lifum hér á Íslandi og höfum það nú bara býsna gott, eigum að reyna að sýna kærleika í verki með því að hjálpa þeim sem eiga um sárt að binda eða lifa í mikilli fátækt. Auðæfum heimsins er því miður misjafnlega skipt. Sums staðar býr fólk við mikla fátækt og hefur kannski hvorki húsaskjól né aðgang að hreinu vatni. Og við erum hendur Guðs hér á jörðinni og reynum að hjálpa þeim sem eru hjálparþurfi.

Af því þekkjum við kærleikann að Jesús lét lífið fyrir okkur. Svo eigum við að láta lífið fyrir hvert annað. Ef sá sem hefur heimsins gæði horfir á bróður sinn eða systur vera þurfandi og lýkur aftur hjarta sínu fyrir þeim, hvernig getur kærleikur til Guðs verið stöðugur í honum? Börnin mín elskum ekki með tómum orðum heldur í verki og sannleika. 1. Jóh. 3.16-18.

Umræðupunktar fyrir yngri deildir

  • Hvað getum við gert til þess að hjálpa þeim sem minna mega sín?
  • Það er mikilvægt að verða ekki svo upptekinn af risastóru vandamálunum í heiminum að maður gleymi að gera vel litlu verkefnin sem skipta máli á hverjum degi. Að vera þakklát og dugleg heima og í skólanum og kannski bara hjálpa einhverjum sem er einmana eða á fáa vini. Við getum öll lagt eitthvað að mörkum og margt smátt gerir eitt stórt.

Umræðupunktar fyrir unglingadeildir

  • Hvað getum við gert til þess að hjálpa þeim sem minna mega sín?
  • Finnst ykkur þið stundum vera beitt órétti?
  • Hvernig er hægt að berjast fyrir auknu réttlæti í heiminum?
  • Það er mikilvægt að verða ekki svo upptekinn af risastóru vandamálunum í heiminum að maður gleymi að gera vel litlu verkefnin sem skipta máli á hverjum degi. Að vera þakklát og dugleg heima og í skólanum og kannski bara hjálpa einhverjum sem er einmanna eða á fáa vini. Við getum öll lagt eitthvað að mörkum og margt smátt gerir eitt stórt.

Aukaefni á efnisveitunni eða á netinu

Áhugavert myndband eftir Telmu Ýr Birgisdóttur sem ber heitið „Ef jörðin væri 100 manna þorp.“

Myndband um vandamál okkar borin uppi af fólki sem býr við raunverulegan vanda.

Hugmyndir af fundarefnum

Það fer vel á því á þessum fundi að kynna hjálparstarfsverkefnið Stop Poverty.

Stop Poverty er herferð ungs fólks gegn fátækt í heiminum. Markmið herferðarinnar er að efla og hvetja ungt fólk til að vekja athygli á fátækt heimsins, berjast gegn rót vandans án ofbeldis og búa til betra samfélag. Fyrstu skref herferðarinnar eru að auka fræðslu um fátækt og beita þrýsting á stjórnvöld og aðra valdamenn til að breyta áherslum, stefnum og stjórnarfari. Herferðin er verkefni á vegum Y Global sem er alþjóðavettvangur KFUM og KFUK í Noregi. Samtökin einbeita sér aðallega að mannréttindamálum. KFUM og KFUK á Íslandi hefur lýst stuðningi sínum við herferðina og hvetjum við sem flesta að taka þátt.

Hægt er að finna sérstaka síðu inn á Facebook sem heitir Stop Poverty Iceland og þar er hægt að fylgjast með og taka þátt.

Nælugerð

Það er kjörið tækifæri að leyfa krökkunum að búa til nælur með Stop Poverty merkinu og jafnvel hanna sínar eigin nælur með boðskap gegn fátækt. Hægt er að fá næluvélar og efni til nælugerðar í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtaveginum. Gott er að hafa samband tímanlega svo öruggt sé að vélin sé laus og nóg til af efni.

Stop Poverty fundur fyrir Unglingadeildir

Smelltu hér til að nálgast Stop Poverty fund fyrir unglingadeildir sem Daría Rudkova, Perla Magnúsdóttir og Pétur Ragnhildarson hafa útbúið sérstaklega.

Stop Poverty Game

Leiðbeiningar

  • Allir þátttakendur fá miða sem þeir einir mega skoða.
  • Á miðanum er hlutverk. Leiðbeinandi byrjar á því að spyrja spurningar um hlutverkin til að fá krakkana til að átta sig hvert á sínu hlutverki. Krakkarnir svara ekki spurningunum, þær eru einungis ætlaðar sem punktar til umhugsunar.

Dæmi um spurningar

  • Hvernig var æska þín? Hvernig leit heimilið þitt út? Hvernig lékstu þér sem barn? Við hvað störfuðu foreldrarnir þínir?
  • Hver eru áhugamál þín? Hvaða fólk umgengst þú? Hvað gerirðu yfir daginn?
  • Hvernig ertu stödd fjárhagslega? Hvar býrðu? Hvað óttastu?

Eftir spurningarnar færðu krakkana til þess að stilla sér upp í beina línu, eins og þau séu að fara kapphlaup. Það er mikilvægt að krakkarnir tali ekki mikið á meðan, og segi alls ekki hvaða hlutverk þau eru.

Leiðbeinandi les staðreyndir. Ef staðreyndin á við um viðkomandi ungling (passar við hlutverk hans), skal sá hinn sami taka eitt skref fram (ef í litlu rými þá skal taka hænuskref).

Markmiðið er fyrir hvern og einn ungling að komast sem lengst áfram, án þess að svindla. Einungis er hægt að komast áfram ef staðreyndin á við viðkomandi – passar við hlutverk hans.

Í lokin verða allir á mismunandi stöðum. Sumum finnst ósanngjarnt að hafa varla hreyft sig á meðan aðrar hafa komist langt áfram. Því næst fá allir að segja hvert hlutverk þeirra er. Við það skýrist hve mislangt hver og einn unglingur komst í leiknum. Í kjölfarið geta hafist umræður um það hvort þetta sé sanngjarnt, og hvað sé hægt að gera til þess að minnka misskiptingu lífsgæða í heiminum í dag. Mjög gott að ræða um fátækt í kjölfarið.

Hlutverkin sem hægt er að fá – Smelltu hér fyrir hlutverkalýsingar á pdf-formi til útprentunar

  • Þú 15 ára, býrð með 7 systkinum í lítilli íbúð í bæ í Þýskalandi. Pabbi þinn er atvinnulaus og mamma þín er afgreiðslukona.
  • Þú ert 17 ára stelpa sem kemur frá Sómalíu (land í Afríku). Þú ert flóttamaður og hefur fengið hæli á Íslandi en þú getur varla skrifað né lesið.
  • Þú ert menntaður verkfræðingur sem kemur frá Írak en þurftir að flytjast á brott sem flóttamaður. Þú ert nú á Íslandi og skilur ekki tungumálið. Þú vinnur við að selja dagblöð.
  • Þú ert einstæð móðir með 3 börn. Þú vinnur í þvottahúsi.
  • Þú ert 24 ára flóttamaður frá Libýu (land í Afríku). Þú býrð nú í flóttamannabúðum á Tyrklandi.
  • Þú ert dóttir sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
  • Þú lifir á ellilífeyri. Þú vannst alla tíð í skóverkssmiðju.
  • Þú ert 83 ára og lifir á lágmarks ellilífeyri.
  • Þú ert 27 ára maður sem býrð á götunni þar sem þú ert heimilislaus.
  • Þú ert hreyfihamlaður ungur maður sem ert í hjólastól
  • Þú ert 16 ára bifvélavirki
  • Þú ert tvítugur nemandi. Þú borgar námsgjöldin þín með því að taka að þér ýmsa aukavinnu með skóla.
  • Þú ert sonur bankastjóra og þú stundar nám við dýran háskóla.
  • Þú ert ólöglegur innflytjandi frá Moldóvíu
  • Þú ert sonur kínversk innflytjenda sem á skyndibitakeðju sem gengur vel.
  • Þú ert 53 ára. Skósmiðsfyrirtækið þitt er nýfarið á hausinn.
  • Þú ert kærasta heróíns fíkils.
  • Þú varst að ljúka við nám í hótelstjórnun og ert að leita þér að vinnu.
  • Þú ert 19 ára sonur bónda sem býr í Cambódíu

Staðreyndirnar sem lesnar eru

  • Þú hefur aldrei lent í alvarlegum fjárhagslegum erfiðleikum.
  • Þú átt gott heimili sem er með síma, sjónvarp og internet.
  • Þér finnst tungumálið þitt, trúin og menning þín vera virt á Íslandi.
  • Þér finnst eins og hlustað sé á þig þegar kemur að skoðunum þínum um félagsleg og stjórnarfarsleg mál.
  • Fólk leitar ráða hjá þér varðandi ýmis málefni
  • Þú hefur ekki áhyggjur af því að lögreglan stoppi þig hér og þar.
  • Þú veist hvar þú getur sótt þér aðstoð og hjálp þegar þú þarft á því að halda.
  • Ef þú lendir í slysi eða veikindum þarftu ekki að hafa áhyggjur að hugsað sé um þig og þú hafir ekki efni á sjúkrakostnaðinum.
  • Þú hefur aldrei fundið fyrir fordómum vegna þess hvaðan þú ert
  • Þú hefur tök á því að fara í frí erlendis á hverju ári
  • Þú mátt alltaf bjóða vinum þínum heim í mat
  • Þú ert hamingjusamur með lífið þitt
  • Þú ert aldrei hræddur um að verða fyrir áreiti úti á götu
  • Þú getur farið í nám og síðan haft vinnu sem þú hefur áhuga á
  • Ef þig langar til þess áttu góða möguleika til þess að sitja í samfélagslegri valdastöðu einn daginn
  • Þú getur tekið þátt í alþjóðlegum ráðstefnum erlendis
  • Þú átt efni á að fara í bíó a.m.k. 1x í viku
  • Þú ert ekki hræddur um framtíð verðandi barna þinna
  • Þú átt efni á að kaupa þér ný föt á 3 mánaða fresti
  • Þér líður eins og þekking þín og hæfileikar séu metin mikils
  • Þú ert með kosningarétt í landinu sem þú býrð í
  • Þú getur komist á internetið þegar þú þarfnast þess
  • Þú ert jákvæður þegar þú hugsar um framtíð þína