Í dag, laugardaginn 2. nóvember, er síðasti skiladagur á Skagaströnd, Akureyri og Egilsstöðum fyrir Jól í skókassa.
Skagaströnd
Tekið verður á móti skókössum í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 2. nóvember frá kl. 11-15.
Tengiliður er Aðalheiður M. Steindórsdóttir (865-3689).
Akureyri
Tekið verður á móti skókössum á Glerártorgi á Akureyri (fyrir framan Nettó) laugardaginn 2. nóvember frá kl. 10-16.
Tengiliður er Jóhann Þorsteinsson (699-4115) starfsmaður KFUM&KFUK á Norðurlandi. Hægt er að vera í sambandi við hann til að skila skókössum á öðrum tímum. Einnig er hægt að skila skókössum beint til Flytjanda á Akureyri.
Egilsstaðir
Tekið verður á móti skókössum laugardaginn 2. nóvember í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4, frá kl. 10-13.
Tengiliðir eru Hlín Stefánsdóttir (849-9537) og Þorgeir Arason (847-9289).