Næsta sunnudag, 5. febrúar, verður að venju sunnudagssamkoma í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík, kl.20.
Samkoman verður að þessu sinni bæna-og vitnisburðasamkoma, í umsjá Örnu Ingólfsdóttur.
Á samkomunni mun Sólveig Reynisdóttir gefa vitnisburð sinn, og samkomugestum er einnig boðið að gefa vitnisburð, og settar verða upp eins konar bænastöðvar í samkomusalnum.
Guðrún Jóna Þráinsdóttir (Rúna) mun sjá um tónlistarundirleik, og Björgvin Þórðarson verður samkomuþjónn.
Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomuna á sunnudagskvöldið og hvattir til að eiga góða stund í góðum félagsskap í upphafi nýrrar viku.