Allir séu þeir eitt. (Jóhannesarguðspjall 17.21)
Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn! – Segir Drottinn allsherjar. (Spádómsbók Sakaría 4.6)
KFUM og KFUK er æskulýðshreyfing sem hefur að markmiði að vekja trú á Krist og kalla til þjónustu í ríki hans, efla trúarlíf og siðferðiskennd og hlúa að andlegri, líkamlegri og félagslegri velferð einstaklingsins.
Þríhyrningurinn í merki félaganna undirstrikar þetta, en hliðar hans tákna líkama, sál og anda.
Aðferðafræðin er aðferð Jesú Krists: Að mæta hverri manneskju af umhyggju, kærleika og virðingu.