Hægt er að semja við bakarí um að kaupa svolítið magn af rúnstykkjum á laugardagsmorgni. Verðið þarf helst að vera undir 50 krónur á hvert rúnstykki. Síðan má pakka 5 stk saman í poka, ganga í hús milli kl. 10 og 11 á laugardagsmorgni og selja pokann á 500 krónur. Hagnaður á hvern poka verður þannig 250 krónur.