Gunnar Hrafn er starfsmaður Vatnaskógar og leiðtogi í starfi KFUM og KFUK í Lindakirkju svo fátt eitt sé nefnt.
Leiðtogi í vetrarstarfi KFUM og KFUK m.a. í Grindavík og á Ásbrú. Starfsmaður í Vatnaskógi.
Heiðar annast starf KFUM og KFUK í Innri-Njarðvík.
Leiðtogi í vetrarstarfi KFUM og KFUK. Sumarbúðastarfsmaður í Vatnaskógi.
Pétur er prestur í Fella- og Hólakirkju og Grafarholti. Hann hefur yfirumsjón með barna- og æskulýðsstarfi í þeim tveimur söfnuðum.
Bára annast yngri deildir (fyrir 9-12 ára) KFUM og KFUK í Sunnuhlíð á Akureyri.
Sveinn hefur leitt yngri deild KFUM í Keflavík sem sjálfboðaliði um árabil.
Sigurbjört (Systa) hefur leitt yngri deild KFUK í Keflavík sem sjálfboðaliði um árabil.