Nú er vetrarstarf KFUM og KFUK í æskulýðsdeildum um land allt að hefjast af fullum krafti. Leiðtogar deildanna eru að setja sig í stellingar og gera sig tilbúna fyrir skemmtilegan vetur. Deildarstarf KFUM og KFUK er fyrir börn í 2.-10.bekk og er skipt í þrjár deildir, Vinadeildir 2.-4.bekkur, Yngrideildir 5.-7.bekkur og Unglingadeildir 8.-10.bekkur.
Deildarstarf fer fram í eftirfarandi stöðum á höfuðborgarsvæðinu: Lindakirkju, Kópavogskirkju, Fella- og Hólakirkju, Ölversdeild og Vindáshlíðardeild. Á landsbyggðini eru eftirfarandi staðir: Keflavík, Grindavík, Innri-Njarðvík, Hveragerði, Akranesi, Akureyri, Dalvík, Siglufirði og Vestmanneyjum.
Nóg erum um að vera í vetur t.d. halloween partý, miðnæturmót og aðrir viðburðir sem setja mark sitt á æskulýðsstarf KFUM og KFUK. Mikill eftirvænting er að starfið hefjist og mun því deildarstarf hefjast í næstu og þarnæstu viku. Frekari upplýsingar verða birtar hér um leið og deildirnar hefjast en einnig er hægt að hringja á skrifstofuna í síma 588 8899 fyrir frekari upplýsingar.