Hátíðar- og inntökufundur félagsins verður þriðjudaginn 7. febrúar næstkomandi kl. 19 að Holtavegi 28.
Á fundinum eru nýjir félagar boðnir velkomnir í félagið samkvæmt gamalli og fallegri hefð.
Fundurinn er veislufundur með kvöldverði og öllu tilheyrandi.
Veislustjóri er Anna Magnúsdóttir, hugleiðing er í höndum Ólafs Jóhanns Borgþórssonar
og hin 17 ára Jóna Alla Axelsdóttir syngur nokkur lög ásamt Bjarna Gunnarssyni sem leikur með á píanó.
Aðgangseyrir er 5.900 kr og skráning fer fram á sumarfjor.is og á skrifstofu félagsins í síma 588 8899.