Þriðjudaginn 4. september var gleðidagur hjá KFUM og KFUK þegar upphafsstund fyrir leiðtoga var haldin á Holtavegi. Öllum þeim sjálfboðaliðum sem munu starfa í deildarstarfi félagsins í vetur var boðið. Í upphafi samverunnnar fórum við í leiki okkur til skemmtunar og til þess að læra eitthvað nýtt sem við getum notað í starfinu okkar áður en við gæddum okkur á pizzum. Því næst fengu allir alls kyns upplýsingar sem snerta starfið og það sem framundan er í vetur. Samveruna enduðum við á dagsrkárgerð þar sem leiðtogarnir miðluðu hver til annars og skipulögðu ævintýralega, fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir veturinn.
Við erum þakklát Guði fyrir alla þessa sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að vinna í Guðsríki við að boða fagnaðarerindið og standa fyrir starfi sem leggur áherslu á heilbrigðt félagsstarf fyrir börn og unglinga.