46 flottar stelpur mættu í Ölver í dag í yndislegu veðri. Þetta er hress og skemmtilegur hópur, stelpurnar alveg til fyrirmyndar og margar eru að koma í Ölver í fyrsta sinn.
Við kynntum fyrir þeim staðinn, gengum um svæðið og fórum í leiki til að hrista hópinn saman. Eftir síðdegiskaffið var farið í íþróttahúsið og þar spiluðu stelpurnar brennó. Eftir kvöldmat var síðan kvöldvaka þar sem stelpurnar úr Hamraveri léku leikrit og skemmtu okkur hinum.
Matseðill dagsins:
Hádegismatur: Sveppasúpa og pizzusneið
Síðdegiskaffi: Gerbollur og súkkulaðikaka
Kvöldmatur: Kjötbollur með kartöflumús.
Yndislegur dagur að kvöldi kominn og ró er að færast yfir skálann.