Hátt í 140 unglingar og leiðtogar dvelja um helgina í sumarbúðunum í Vatnaskógi og njóta þess að vera saman. Yfirskrift mótsins er Paradís og hafa þátttakendur velt fyrir sér hvað þarf til að allt verði gott.
Mótið hófst með kvöldvöku kl. 21 í gærkvöldi og lýkur með guðsþjónustu í Hallgrímskirkju á Saurbæ kl. 14 á morgun.