Í kvöld, fimmtudaginn 23. febrúar verður fundur hjá AD (aðaldeild) KFUM á Holtavegi 28, Reykjavík, kl.20.
Umsjón með efni kvöldsins, „Ár í VR“, hefur Stefán Einar Stefánsson, formaður VR. Stefán flytur einnig hugleiðingu.
Fundarstjórn verður í höndum séra Jóns Ómars Gunnarssonar, æskulýðsprests KFUM og KFUK á Íslandi.
Kaffi og kaffiveitingar verða að venju á boðstólnum eftir að fundi líkur. Oddrún Jónasdóttir Uri hefur umsjón með veitingum, og eru henni færðar bestu þakkir fyrir það.
Allir karlmenn eru hjartanlega velkomnir á fundinn.
Fundir AD KFUM eru haldnir alla fimmtudaga yfir vetrarmánuði í húsi KFUM og KFUK, að Holtavegi 28.