Næsta föstudag, 3.febrúar, er fyrsti fundur Skógarvina nú á vormisseri 2012.Skógarvinir eru hópur drengja á aldrinum 12-14 ára sem taka þátt í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK með sérstakri áherslu á Vatnaskóg. Dagskráin í vor er skemmtileg og sést hér fyrir neðan. Skógarvinir hittast alls fimm sinnum í vor.
Dagskráin hefst kl. 17:00 á föstudögum, en mæting er í hús KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík.
Þátttökugjald er 9.500 kr., en innifalið í þeirri upphæð eru ferðir, matur og gisting. Skráning er hafin og er í fullum gangi í síma 588-8899 og einnig á skraning.kfum.is. Aðeins 25 drengir komast að í Skógarvini.
Dagskrá Skógarvina vorið 2012:
3. febrúar
Skógarmannafundur á Holtavegi: Uppbygging í Vatnaskógi kynnt.
Farið í leiki – Síðdegishressing – Dagskrá lýkur kl. 19:00.
17. febrúar
Rúv/ Sportið: Heimsókn á Rúv til Þorkels Gunnars íþróttafréttamanns.
Síðdegishressing – Mæting á Holtaveg og heimkoma á sama stað um kl. 19:00.
2. mars
Hellaskoðun: Raufarhólshellir skoðaður
Vinsamlega komið með vasaljós og hjálm
Kvöldmatur – Heimkoma á Holtaveginn um kl. 20:30.
16.- 17. mars
Ferð í Vatnaskóg:
Spennandi ævintýraferð þar sem drengirnir takast
á við verkefni og ævintýri í Vatnaskógi á óvenjulegum tíma.
Heimkoma á laugardeginum kl.14:00.
30. mars
Laser tag
Lindakirkja heimsótt – Kvöldmatur
Dagskrá lýkur kl. 21:00.
Umsjónarmenn Skógarvina vorið 2012 eru:
Ársæll Aðalbergsson 50 ára
Benedikt Snær Magnússon 22 ára
Styrmir Magnússon 36 ára
Þór Bínó Friðriksson 25 ára.
Skógarmenn – Áfram að markinu!