Aðal- og ársfundir starfsstöðva KFUM og KFUK á Íslandi verða á tímabilinu 11. mars. til 3. apríl 2025 og hefjast kl. 20:00, nema annað sé auglýst.
Hér með er boðað formlega til fundanna, eins og lög kveða á um. Allir fullgildir og skuldlausir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi hafa rétt til að kjósa á aðal- og ársfundum starfsstöðva félagsins.
Á aðal- og ársfundum fara fram venjuleg aðalfundarstörf, starfsskýrslur eru kynntar, endurskoðaðir reikningar lagði fram, fjárhagsáætlanir kynntar, kosið er í stjórnir og umræður um starfið fara fram.

Aðalfundur KFUM og KFUK á Íslandi 
Laugardaginn 12. apríl 2025 kl. 10:00
Formlegt boð á aðalfund KFUM og KFUK á Íslandi.
Aðalfundur KFUM og KFUK á Íslandi fer fram laugardaginn 12. apríl 2025 kl. 10:00- 14:00.
Fundurinn fer fram í húsi félagsins að Holtavegi 28 í Reykjavík. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf.
Allir fullgildir og skuldlausir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi hafa atkvæðisrétt á fundinum.
Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna.

Aðal- og ársfundir starfsstöðva 2025

Aðalfundur KFUM og KFUK Reykjanesbæ
Þriðjudaginn 11. mars
Haldinn í félagshúsi KFUM og KFUK Reykjanesbæ
Hátúni 36

Aðalfundur KFUM og KFUK Akureyri
og aðalfundur Hólavatns
Miðvikudaginn 12. mars
Haldinn í Glerárkirkju

Aðalfundur Ölvers
Miðvikudaginn 12. mars
Haldinn á Holtavegi 28 (endasal)
(athugið breytta dagsetningu)

Aðalfundur Kaldársels
Þriðjudaginn 18. mars
Haldinn á Holtavegi 28 (endasal)

Aðalfundur KFUM og KFUK Vestmannaeyjum
Miðvikudaginn 19. mars
Haldinn í Landakirkju kl. 12:00

Aðalfundur Karlakórs KFUM
Mánudaginn 24. mars
Haldinn á Holtavegi 28 (eftir kóræfingu)

Aðalfundur Vindáshlíðar
Þriðjudaginn 25. mars
Haldinn á Holtavegi 28

Aðalfundur Vinagarðs Leikskóla KFUM og KFUK
Miðvikudaginn 26. mars
Haldinn á Vinagarði (Uglugarði) á Holtavegi 28

Aðalfundur Skógarmanna
Fimmtudaginn 3. apríl
Haldinn á Holtavegi 28