Jólasnjórinn fellur mjúklega fyrir utan gluggann, útvarpið spilar bestu jólalögin og heitt kakó er á könnunni. Þá tekurðu fram smákökudeig Hlíðarmeyja – einfalt og dásamlega gott – og þú bakar heitar, nýbakaðar smákökur sem fylla húsið af dásamlegum jólailm.
Með hverju smákökudeigi styður þú framkvæmdir í Vindáshlíð. Þú færð ekki bara ljúffengar kökur heldur leggur líka þitt af mörkum til frábærs málefnis.
Hvernig virkar þetta?
- Í hverri viku verða tvær sortir til sölu. Opið er fyrir pantanir næstu fjórar vikurnar.
- Pantaðu smákökudeigið þitt fyrir hádegi á fimmtudögum í hverri viku.
- Sækir á föstudögum á Holtaveg 28 fyrir kl. 18:00.
- Eða fáðu það í sent beint heim að dyrum fyrir aðeins 1.000 kr. (á höfuðborgarsvæðinu).
Í boði verður:
Vika 1 – afhent 15. nóvember: Smákökur með hvítu súkkulaði og lakkrís og rjómaostatoppar með hvítu súkkulaði.
Vika 2 – afhent 22. nóvember: Smákökur með smartiesperlum og súkkulaðibitakökur með karamelludaim.
Vika 3 – afhent 29. nóvember: Súkkulaðibitakökur með þristum og karamellulengjur.
Vika 4 – afhent 6. desember: Súkkulaðibitakökur með brúnuðu smjöri og kanillengjur.
Ekki láta jólastemninguna fram hjá þér fara – tryggðu þér dásamlegt smákökudeig í dag: https://klik.is/event/buyingflow/108